Lífið

Frægir fjölguðu sér árið 2020

Stefán Árni Pálsson skrifar
Fjölmörg falleg börn komu í heiminn á árinu 2020.
Fjölmörg falleg börn komu í heiminn á árinu 2020.

Það er ávallt mikið gleðiefni þegar börn koma í heiminn í fyrsta sinn.

Lífið hefur greint reglulega frá því þegar þekktir einstaklingar eignast börn og má segja að 2020 hafi verið mikið barnalánsár.

Hér að neðan má sjá hvaða börn fæddust á árinu og Vísir greindi frá.

Síðasta ár endaði einstaklega vel fyrir Arnar Freyr Frostason og Sölku Sól Eyfeld en dóttir þeirra kom í heiminn undir blálokin á árinu 2019.

„Eitt eftirminnilegasta ár lífs míns. Brúðkaup, tæknifrjóvgunin, Hong Kong, gæsun, baby shower endalaust af tónleikum, Ronja og eftir nokkra daga fáum við litlu stelpuna okkar í hendurnar,“ sagði Salka í færslunni en nú er stelpan komin í heiminn.

Fjölmiðlakonan Helga Arnardóttir og Bragi Þór Hinriksson eignuðust sitt fyrsta barn saman þegar drengurinn þeirra kom í heiminn 2. janúar á þessu ári. 

„Þessi dásamlegi drengur og óskabarn kom í heiminn síðastliðinn fimmtudag á þeirri fallegu dagsetningu 02.01.20. Móðirin átti yndislega þriggja tíma fæðingu með aðstoð ótrúlegrar ljósmóður á fæðingardeild LSH sem gerði þessi upplifun ógleymanlega,“ skrifaði Helga í færslu á facebook. 

Þessi dásamlegi drengur og óskabarn kom í heiminn síðastliðinn fimmtudag á þeirri fallegu dagsetningu 02.01.20. ...

Posted by Helga Arnardóttir on Mánudagur, 6. janúar 2020

Þann 6. janúar kom dóttirHönnu Rún Óladóttir og Nikita Bazev í heiminn en fyrir áttu þau einn dreng. 

Margrét Edda Gnarr og Ingimar Elíasson eignuðust dreng þann 13. janúar. Drengurinn var fyrsta barn Margrétar og Ingimars saman en fyrir átti Ingimar eitt barn.

„Frumburður okkar Ásu, hraustur og fallegur drengur, fæddist á Landspítalanum í gærmorgun. Drengurinn, sem heldur hér um baugfingur föður síns, var 13 merkur (3,2 kg.) og 49 cm. Hann hefur varir, nef og höku föður síns en augnsvip og eyru móður sinnar. Við höfum þegar gefið drengnum nafn og heitir hann Tómas. Öllum heilsast vel,“ skrifaði lögmaðurinn Þorbjörn Þórðarson í færslu undir lok janúar. Þá kom í heiminn fyrsta barn hans og Ásu Dagmar

Þorbjörn vann lengi vel sem fréttamaður á Stöð 2 en starfar í dag á lögmannsstofunni LPR.

Ása og Þorbjörn saman á síðustu árshátíð Sýnar í maí 2019.VÍSIR/MARINÓ FLÓVENT

Landsliðsmarkvörðurinn Guðbjörg Gunnarsdóttir og unnusta hennar Mia Jalkerud eignuðust tvíbura 31. janúar.

Þá komu þau William og Olivia í heiminn eins og Guðbjörg greindi frá á Twitter.

Söngvarinn Sverrir Bergmann skrifar fallega færslu á Instagram í febrúar þar sem hann sagði frá því að dóttir hans og Kristínu Evu Geirsdóttur, lögfræðingi, hafi komið í heiminn 4. febrúar.

„Lífið orðið breytt fyrir lífstíð. Allt er orðið eins og það á að vera. Kristínu og dóttur okkar líður vel. Litla drekkur og drekkur, kúkar, pissar og lætur í sér heyra. Yndislegt. Ég læt nokkrar myndir fylgja með og eina af fylgjunni. Í þessum belg var stúlkan okkar síðustu 9 mánuði þar sem hún nærðist, stækkaði og dafnið. Ótrúlegt. Magnað. Pabbi meyr, stoltur og þakklátur.“

Þau eiga von á stúlku á næsta ári.

Edda Sif Pálsdóttir og Vilhjálmur Siggeirsson eignuðust sitt fyrsta barn 10. febrúar þegar drengurinn Magnús Berg Vilhjálmsson kom í heiminn. 

Afinn Páll Magnússon deildi færslu á Facebook þar sem hann var yfirsig stoltur af nafnanum.

Þau Aðalsteinn Kjartansson, fréttamaður á RÚV, og Elísabet Erlendsdóttir, starfsmaður Advania, eignuðust sitt fyrsta barn saman í lok febrúar. 

Aðalsteinn hefur vakið mikla athygli fyrir aðkomu hans að fréttaskýringaþættinum Kveik og greindi hann frá Samherjamálinu ásamt Helga Seljan. Aðalsteinn vann einnig að Panama-skjala þættinum fræga á sínum tíma.

Hann á tvö börn úr fyrra sambandi en þetta mun vera fyrsta barn Elísabetar.

Elísabet og Aðalsteinn á árshátíð Advania vorið 2018.

Margrét Bjarnadóttir, kokkanemi, og Ísak Ernir Kristinsson, stjórnarformaður Kadeco og körfuboltadómari, eignuðust sitt fyrsta barn í lok mars á árinu.

Margrét er dóttir þeirra Bjarna Benediktssonar, fjármálaráðherra, og Þóru Margrétar Baldvinsdóttur. Þá varð Bjarni afi í fyrsta sinn.

Móeiður Lárusdóttir og landsliðsmaðurinn Hörður Björgvin Magnússon eignuðust sitt fyrsta barn 25. apríl. Móeiður og Hörður hafa komið víða við en búa um þessar mundir saman í Moskvu í Rússlandi, þar sem Hörður spilar með knattspyrnuliðinu CSKA Mosvka.

Hjónin Hannes Þór Halldórsson, landsliðsmaður í knattspyrnu, og Halla Jónsdóttir eignuðust sitt þriðja barn í maí.

Hannes greindi frá því á Instagram og skrifaði: „Hildur Anna Hannesdóttir, nýjasti fjölskyldumeðlimurinn með stoltum stóru systkinum.“

Skúli Mogensen, fyrrverandi forstjóri og stofnandi WOW air, og Gríma Björg Thorarensen eignuðust sitt fyrsta barn saman þann 6. maí.

Þá kom drengur í heiminn eins og Skúli greinir frá á Facebook. „Litli prinsinn mætti með látum í gær kl 10.54, heilbrigður, stæltur og glæsilegur eins og móðir sín. 53 cm og 4,160 kg. Allt gekk eins og í sögu og pabbi að springa úr stolti.“

Skúli og Gríma hófu sitt samband árið 2017.

Steinþór Hróar Steinþórsson sjónvarpsmaður og Sigrún Sigurðardóttir snyrti- og förðungarfræðingur eignuðust sitt annað barn í byrjun maí. 

Fyr­ir á parið eina dóttur, Ronju Nótt, sem fæddist árið 2014.

Leikaraparið Þuríður Blær Jóhannsdóttir og Guðmundur Felixson eignuðust sitt fyrsta barn um miðjan júní þegar drengurinn þeirra kom í heiminn.

Landsliðsmaðurinn Ragnar Sigurðsson varð faðir í annað sinn en honum og Alyonu, unnustu hans fæddist stúlka 20. júní.

Alyona greindi frá fæðingu stúlkunnar á Instagramsíðu sinni og hlaut hún nafnið Mia. Parið er búsett í Kaupmannahöfn þar sem Ragnar leikur með knattspyrnuliðinu FC Kobenhavn en flugu þau hingað til Íslands þar sem að barnið fæddist.

Samfélagsmiðlastjarnan Camilla Rut Rúnarsdóttir og eiginmaður hennar, Rafn Hlíðkvist Björgvinsson, eignuðust sitt annað barn 6. júlí.

Förðunarfræðingurinn Harpa Káradóttir og Guðmundur Böðvar Guðjónsson eignuðust tvíbura 23. júlí.

Harpa greindi frá þessu á Instagram og skrifaði í sumar.

„Og allt í einu eru þeir bara komnir til okkar. Við Guðmundur trúum varla okkar eigin augum. Litlu kraftaverkin okkar.“

Harpa þykir einn færasti förðunarfræðingur landsins og er í sambandi með knattspyrnumanninum Guðmundi Böðvari Guðjónssyni. Harpa á eina dóttur úr fyrra sambandi.

Hér að neðan má sjá fjölskylduna í jólaboði á dögunum. 

Annie Mist Þórisdóttir Crossfit-kempa eignaðist sitt fyrsta barn í ágúst með unnusta sínum Frederik Ægidius.

Knattspyrnumaðurinn Albert Guðmundsson og Guðlaug Elísa Jóhannsdóttir fyrirsæta eignuðust dreng 18. september. Frá þessu greindi Guðlaug Elísa á Instagram. Þar kom fram að drengurinn hafi fengið nafnið Guðmundur Leó.

Albert og Guðlaug eru bæði 23 ára og er þetta þeirra fyrsta barn. Þau eru búsett í Hollandi en Albert leikur knattspyrnu með AZ Alkmaar í hollensku úrvalsdeildinni.

Hafþór Júlíus Björnsson og Kelsy Henson buðu velkomið sitt fyrsta barn saman þann 26. september.

Landsliðskonan Karen Knútsdóttir og Þorgrímur Smári Ólafsson eignuðust sitt fyrsta barn í lok september. Frá þessu greindi Þorgrímur á Instagram.

„Gleðitárin streymdu niður kinnarnar þegar þess fallega unga dama lét loksins sjá sig 26. september kl. 04:56. Karen stóð sig með stakri prýði og var aðdáunarvert að sjá þennan kraft eftir tveggja daga fæðingu,“ skrifaði stoltur faðir.

Kristbjörg Jónasdóttir og Aron Einar Gunnarsson eignuðust sitt þriðja barn 1. október. 

„Kristbjörg er ofurkona og ég er svo stoltur af þér. Núna eigum við annan dreng til að eyða lífinu með. Oliver og Tristan er svo spenntir að hitta litla bróðir sinn,“ skrifaði Aron á Instagram.

Kristbjörg og Aron Einar eru búsett í Katar þar sem drengurinn fæddist. Þau eiga fyrir þá Oliver og Tristan og er fjölskyldan nú orðin fimm manna.

Margrét Magnúsdóttir og Fjölnir Þorgeirsson eignuðust sitt fyrsta barn saman þann 13. október þegar drengur kom í heiminn.

„Yndislegi sonur okkar kom í heiminn 13. október og allt gekk vonum framar og erum við óendanlega þakklát frábæru læknateymi á Landsspítalanum og erum við í skýjunum með drenginn okkar,“ skrifaði Fjölnir á samfélagsmiðlinum en drengurinn var um þrjú kíló og 48 sentímetrar.

Arnór Dan Arnarson, tónlistarmaður og söngvari hljómsveitarinnar Agent Fresco, og Vigdís Hlíf Jóhönnudóttir eignuðust stúlku þann 17. október.

„Elsku vinir. Fallega dóttir okkar kom í heiminn 17. október. Vigdís sýndi ótrúlegan kraft þegar hún fæddi dóttur okkar sem er algjörlega heilbrigð. Konan mín geislar hreinlega af móðurást,“ skrifaði Arnór í færslu á Instagram.

Fjölmiðlamaðurinn Kjartan Atli Kjartansson og Pálína María Gunnlaugsdóttir eignuðust stúlku 31. október. Stúlkan vó 13 merkur og mældist 43 sentímetrar. Fyrir áttu þau saman stúlkuna Klöru Kristínu sem fæddist árið 2009.

Knattspyrnumaðurinn og þjálfarinn Hermann Hreiðarsson og Alexandra Fanney Jóhannsdóttir eignuðust sinn annan son þann 16. október síðastliðinn.

Aðeins eitt ár er á milli drengjanna, en foreldrarnir segjast mæla með því að eignast börn með stuttu millibili.

Annað barn söngkonunnar Stefaníu Svavarsdóttur kom í heiminn um miðjan desember. Stefanía birti myndskeið af sér og nýfæddri dóttur sinni á Instagram. Fyrir á Stefanía tveggja ára gamlan son.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×