Innlent

Vistaður í fanga­geymslu eftir líkams­á­rás

Sylvía Hall skrifar
Lögreglan hafði í nógu að snúast í nótt.
Lögreglan hafði í nógu að snúast í nótt. Vísir/vilhelm

Líkamsárás átti sér stað í miðbæ Reykjavíkur á níunda tímanum í gær. Einn var handtekinn grunaður um líkamsárás og hótanir og var hann vistaður í fangageymslu lögreglu fyrir rannsókn málsins. Sá sem varð fyrir árásinni fór á bráðadeild til aðhlynningar, en samkvæmt upplýsingum frá lögreglu er ekki vitað um áverka.

Þá skemmdust tveir bílar í Efra-Breiðholti eftir að eldur kom upp í öðrum þeirra í nótt. Bíll sem stóð á móti þeim sem brann skemmdist í brunanum en slökkviliðið var kallað á vettvang.

Slökkviliðið hafði einnig verið kallað út fyrr um kvöldið eftir að eldur kom upp í kertaskreytingu á stofuborði í Hlíðahverfi. Enginn var heima þegar eldurinn kom upp en þegar inn var komið var eldurinn „að mestu búinn“ samkvæmt lögreglu, en íbúðin full af reyk.

Fór inn í ólæsta bíla

Brotist var inn í bíla í Hlíðahverfi og Garðabæ síðdegis í gær og í nótt, en skömmu eftir klukkan fimm í gær var tilkynnt um innbrot og þjófnað bíls sem hafði verið lagt í bílakjallara í Hlíðunum. Munum var stolið úr bílnum og einhverjar skemmdir voru á honum. Eftir miðnætti var svo tilkynnt um þjófnað og eignaspjöll í Garðabæ þar sem farið var inn í ólæstar bifreiðar.

Þá hafði lögregla afskipti af nokkrum ökumönnum í gærkvöldi og í nótt. Rétt fyrir klukkan níu í gærkvöldi var ökumaður stöðvaður í Efra-Breiðholti, grunaður um ítrekaðan akstur án ökuréttinda. Fjórum mínútum seinna var annar ökumaður stöðvaður í sama hverfi, grunaður um hið sama sem og ölvun við akstur. Eftir mælingu reyndist ökumaðurinn vera undir refsimörkum hvað varðar áfengismagn.

Um miðnætti þurfti lögregla að hafa afskipti af ökumanni í Hafnarfirði. Sá er grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna, akstur án gildra ökuréttinda og vörslu fíkniefna. Skömmu síðar var annar ökumaður stöðvaður í Hlíðahverfi grunaður um að vera undir áhrifum fíkniefna og án ökuréttinda.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×