Atvinnulíf

Að komast á rétt ról (á ný) með tímastjórnun

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Stafræn truflun er algengt vandamál í vinnu.
Stafræn truflun er algengt vandamál í vinnu. Vísir/Getty

Þótt unnið sé heiman frá þarf að huga að ýmsum atriðum eins og að forðast kulnun, að gera verkefnalista, að hafa stjórn á truflun og fleira. Hér eru nokkur einföld ráð til að ná tökum á tímastjórnun í fjarvinnu.

Það finnst mörgum þeir vera að missa tökin á tímastjórnun í fjarvinnu. Margt í gangi í einu eða jafnvel ekki neitt. Að vinna að heiman er um margt ólíkt en á vinnustaðnum en heima fyrir þarf þó ekkert síður að huga að almennum atriðum. Verkefnalistanum sínum, tímastjórnun, líkamsbeitingu við vinnu eða að forðast kulnun.

Hér eru þrjú einföld ráð fyrir þá sem finnst þeir aðeins vera að missa tökin á tímastjórnun í vinnunni.

1. Að takmarka stafræna truflun

Stafræn truflun er ein algengasta truflun í vinnu í dag. Að sjá eða heyra tilkynningar poppa upp á skjánum eða í símanum allan daginn truflar. Að setja símann á Silent um tíma, loka Facebooksíðunni í tölvunni eða setja sér mörk um hvenær þú vilt kíkja á netið eru allt einföld ráð en góð. 

Þá er gott að hafa í huga að það þarf ekki að svara öllum tölvupóstum strax. Þú getur því alveg úthlutað tölvupósthólfinu þínu takmarkaðan tíma og bæði lesið og svarað tölvupóstum á úthlutuðum tímum.

Í þessu er mjög gott að byrja á því að spyrja sjálfan sig: Í hvað fer orkan mín á daginn? Því þótt við gerum okkur ekki grein fyrir því, tekur það frá okkur orku og riðlar forgangsröðun ef við erum alltaf að truflast af einhverju sem í raun tengist ekki verkefninu sem við viljum einbeita okkur að.

2. Góður verkefnalisti

Þá er gott að útbúa verkefnalista fyrir daginn en passa vel upp á að hann sé raunhæfur. Verkefnalistinn þarf að endurspegla forgangsröðun verkefna. Það er ekki aðeins gott fyrir skipulagið að vera með góðan verkefnalista því það að sjá hvernig við erum að klára verkefni af listanum gefur okkur líka góða tilfinningu fyrir því að við erum að standa okkur vel.

3. Sinntu félagsþörfinni

Félagshlutinn er öllum mikilvægur og þótt samstarfsfólk í fjarvinnu sé ötult að ræða vinnutengd mál á Teams og fleiri stöðum, þarf líka að passa upp á að taka sér hlé frá vinnu.

Að sinna félagsþörfinni er góð leið til að draga úr streitu. Sem aftur leiðir til þess að við náum betur að vera skilvirk og skipulögð við vinnu.

Að úthluta sér afmörkuðum tíma fyrir vinaspjall eða eitthvað skemmtilegt yfir daginn, er því nauðsynlegt inn í dagskránna. Það getur líka hjálpað okkur við að vera enn meira á tánum að klára þau verkefni sem klára þarf, á úthlutuðum vinnutíma. 


Tengdar fréttir

Leiðir til að forðast kulnun í fjarvinnu

Það er jafn mikilvægt að vera vakandi yfir kulnun í fjarvinnu eins og þegar unnið er á vinnustaðnum. Hér eru þrjú góð ráð til að hafa í huga daglega í fjarvinnu.

Gallup: Fleiri árekstrar einkalífs og vinnu í fjarvinnu

Nýjar tölur um fjarvinnu gefa vísbendingar um að mögulega séu auknar áskoranir í fjarvinnunni núna í október í samanburði við í sumar. Í dag birtir Atvinnulífið október tölur Gallup um fjarvinnu.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×