Öryggisstjóri Apple ákærður fyrir að reyna að múta lögreglu með iPad-tölvum Vésteinn Örn Pétursson skrifar 24. nóvember 2020 22:09 iPad. Yu Chun Christopher Wong/S3studio/Getty
Thomas Moyer, alþjóðaöryggisstjóri hjá tæknifyrirtækinu Apple, hefur verið ákærður fyrir að hafa reynt að múta lögreglumönnum. Hann er sagður hafa boðið þeim hundruð iPad-spjaldtölva, með það að markmiði að fá leyfi fyrir fjóra starfsmenn Apple til að bera byssur innan klæða. Guardian-fjallar um málið. Saksóknarar í Kaliforníu segja tvo lögreglumenn hafa tekið þátt í ráðabrugginu. Þeir hafi hafnað umsókn um leyfi starfsmanna til vopnaburðar nema þeir fengju eitthvað í staðinn. Moyer er þá sagður hafa reynt að fá umsóknirnar samþykktar með því að bjóða lögregluumdæminu 200 iPad-spjaldtölvur, endurgjaldslaust. Virði spjaldtölvanna er um 70.000 dollarar, eða rúmlega níu og hálf milljón króna. Afhending spjaldtölvanna fór aldrei fram, en saksóknarar segja að hætt hafi verið við hana á síðustu stundu eftir að Moyer og annar lögreglumannana komist að því að verið væri að rannsaka málið og húsleit hefði farið fram í húsakynnum lögreglu vegna þess. Lögreglumennirnir tveir, Rick Sung og James Jensen, hafa einnig verið ákærðir. Sung fyrir að falast eftir mútum og Jensen fyrir að hjálpa honum við það.
Apple Bandaríkin Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Nóg sé komið af Trump Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Fleiri fréttir Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Sjá meira