Atvinnulíf

Fólk beðið um að senda ekki stutta og óþarfa tölvupósta

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Það kannast allir við að senda stundum stutta tölvupósta, til dæmis bara TAKK! En allir tölvupóstar skilja eftir skil kolefnisfótspor.
Það kannast allir við að senda stundum stutta tölvupósta, til dæmis bara TAKK! En allir tölvupóstar skilja eftir skil kolefnisfótspor. Vísir/Getty

Í Bretlandi stendur nú yfir átak þar sem fólk er hvatt til að hætta að senda tölvupósta til að þakka fyrir eitthvað. Eða almennt að senda tölvupósta sem ekki hafa neinn tilgang annan en til að senda kveðju. 

Og hvers vegna?

Jú, að fækka tölvupóstum er liður í því að sporna við loftlagsbreytingum.

Í umfjöllun Financial Times er á það bent að allir tölvupóstar skilja eftir sig kolefnisfótspor í formi notkunar á rafmagni, sbr. rafmagn vegna notkunar á tækjum, netsins eða gagnavera. 

Samkvæmt rannsókn sem fyrirtækið Ovo Energy stóð fyrir senda Bretar að meðaltali um 64 milljónir tölvupósta á dag.

Ef hver og einn notandi nær að fækka tölvupóstsendingum um einn tölvupóst á dag, getur það þýtt sparnað upp á 16,433 tonn í kolefnisframleiðslu á ári. Þessi sparnaður þykir reyndar mjög lítill í samanburði við margt annað, t.d. bíla. 

Í umfjöllun um átakið segir hins vegar að í þeirri loftlagskrísu sem við blasir í heiminum, skiptir allt máli: Stórt sem smátt.

Hér er listi yfir tölvupósta sem Bretar eru hvattir til að hætta að senda og eru hvað algengustu stuttu tölvupóstarnir sem fólk sendir þar, samkvæmt fyrrgreindri rannsókn. Við látum þýðingu fylgja með í sviga sem tillögu um þá tölvupósta sem fólk gæti hætt að senda á milli sín hér.

  1. Thank you (Kærar þakkir)
  2. Thanks (Takk)
  3. Have a good weekend (Góða helgi)
  4. Reiceived (Móttekið)
  5. Appreciated (Þetta er vel metið)
  6. Cheers (Skál! Á íslensku gæti þetta verið tölvupóstur eins og „Frábært!“ eða eitthvað álíka)
  7. You too (Sömuleiðis)
  8. LOL (Til dæmis broskarl eða sambærilegur tölvupóstur)

Ovo Energy er fyrirtæki sem stendur á bakvið forritið Carbon Capper. Það er hægt að nota með Chrome vafranum og virkar þannig að ef fólk er að senda tölvupóst sem telur færri en fjögur orð, þá fær það nokkurs konar villumeldingu áður en tölvupósturinn er sendur.


Tengdar fréttir

Að forðast mistök í tölvupóstum, líka Gmail

Fyndni á sjaldnast við í tölvupóstum og framsetning þeirra á að vera auðveld lesning fyrir móttakandann. Einkamál eiga að vera send úr sérnetfangi og aðskilin póstfangi vinnuveitanda.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×