Atvinnulíf

Breyttar áherslur hjá Timberland, McDonalds, Lego og Levi‘s

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Þótt baráttan við kórónufaraldurinn hafi lamað atvinnulífið um allan heim eru fyrirtæki enn að þróa og prófa sig áfram í breytingum til að sporna við loftlagsbreytingum.
Þótt baráttan við kórónufaraldurinn hafi lamað atvinnulífið um allan heim eru fyrirtæki enn að þróa og prófa sig áfram í breytingum til að sporna við loftlagsbreytingum.

Upp á síðkastið hefur lítið farið fyrir umræðu um loftlagsmál. Baráttan við kórónufaraldurinn ræður ríkjum alls staðar en þó eru ýmiss stór verkefni í gangi þar sem framleiðendur boða breyttar áherslur. Mörg þekkt merki hafa til dæmis verið að þróa vörur sem byggja á endurnýtanlegri framleiðslu frá grunni. Dæmi um slíkan framleiðanda er Adidas sem Atvinnulífið hefur þegar fjallað um.

Vörumerkið Timberland ætlar að ganga skrefinu lengra. Til viðbótar við markmið um að skór og fatnaður Timberland verði endurnýtanleg framleiðsla fyrir árið 2030 er ætlunin þeirra að breyta framleiðsluferlinu öllu þannig að það skili á endanum af sér nettó jákvæð áhrif fyrir umhverfið. Að mati forsvarsaðila Timberland er þetta viðhorfið sem fleiri í fataiðnaði ættu að temja sér. Ekki sé nóg að iðnaðurinn nái núllpunkti og hætti að menga og skemma útfrá sér, heldur þurfi iðnaðurinn að leggja sitt á vogarskálarnar til að bæta umhverfið.

Lego ætlar að pakka kubbum í endurvinnanlega pappírspoka í stað plasts.

Leikfangaframleiðandinn LEGO stendur í stórræðum því ætlunin þeirra er að hætta að pakka kubbum og stykkjum í litla plastpoka og taka í notkun endurvinnanlega pappírspoka í staðinn. Gallinn við pappírspokana er að þeir eru ógagnsæir. Áður en valið var úr þeim 15 tegundum af endurvinnanlegum pappírspokum fyrir kubbana, stóðu yfir rýnihópakannanir með hundruði barna til að sjá hvaða tegund var að mælast best hjá þeim sem notendur. Þegar valið lá fyrir var ákveðið að frá og með árinu 2021 fari Lego að pakka kubbunum í pappír frekar en plast.

McDonalds í Bretlandi notar endurvinnanleg glös en prófar sig nú áfram með endurnýtanlega bolla.

Í Bretlandi standa yfir tilraunir hjá McDonalds. Þær ganga út á endurnýtanlega bolla fyrir kaffi og aðra heita drykki. Nú þegar hafa flestir staðir McDonalds í Bretlandi tekið í notkun glös sem send eru til endurvinnslu. Kaffibollarnir sem verið er að prófa eru hins vegar ætlaðir í sótthreinsiþvott og aftur til notkunar. Fyrir McDonalds er þetta viðamikil breyting enda hefur flest allt á þeirra vegum verið einnota.

Þá opnaði Levi‘s nýja netverslun fyrir stuttu sem ekki væri frásögu færandi nema fyrir það að hún selur notaðar vörur frá Levi‘s. Verslunin heitir Levi‘s SecondHand. Viðskiptavinir Levi‘s sem skila til þeirra vörum geta fengið allt að 25 dollara greidda fyrir flíkina. Hún er síðan þvegin og sett aftur í sölu á þeirra vegum.


Tengdar fréttir

Fær kýr til að prumpa og ropa minna

Nú standa vonir til þess að fæðubótarefni sem sænskt nýsköpunarfyrirtæki hefur þróað muni draga verulega úr losun metans frá kúm.

Ormar sem éta plast

Ný rannsókn sýnir að ormar geta nýst vel til að eyða plasti.

Loftlagsmálin: Þurfum ekki að fara í fyrra horf

„Covid19 færði okkur breytta heimsmynd og lækkandi kolefnisspor með minni samgöngum og meiri fjarvinnu," segir Eva Magnúsdóttir framkvæmdastjóri Podium sem hvetur stjórnendur til að taka stærri skref í loftlagsmálum.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×