Innlent

Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar

Joe Biden, verðandi forseti Bandaríkjanna lýsti yfir sigri í nótt. Fráfarandi forseti landsins Donald Trump heldur ásökunum um kosningasvik til streitu án sannana og hefur ekki enn óskað verðandi forseta til hamingju með sigurinn og þannig viðurkennt ósigur sinn. Fjallað verður um úrslit kosninganna í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Einnig verður rætt við yfirlögregluþjón hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu um aukið álag á lögreglumenn í kórónuveirufaraldrinum. Dæmi eru um að menn hafi þurft að fara ítrekað í sóttkví vegna afskipta af fólki sem virðir ekki sóttvarnareglur.

Þetta og margt fleira í kvöldfréttum á samtengdum rásum Stöðvar 2, Bylgjunnar og á Vísi kl. 18:30.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×