Íslenski boltinn

KR-ingar telja á­kvörðun KSÍ ekki standast lög sam­bandsins: „Stjórnin getur ekki ein­hliða breytt lögum“

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Ljóst er að karlalið KR kemst ekki í Evrópukeppni að ári eftir KSÍ ákvað að hætta keppni á Íslandsmótinu sem og Mjólkurbikarnum.
Ljóst er að karlalið KR kemst ekki í Evrópukeppni að ári eftir KSÍ ákvað að hætta keppni á Íslandsmótinu sem og Mjólkurbikarnum. Vísir/Bára

Páll Kristjánsson, formaður knattspyrnudeildar KR, ræddi við Gaupa í Sportpakka Stöðvar 2 um ákvörðun Knattspyrnusambands Íslands að enda Íslandsmótið í knattspyrnu. Ætlar KR að áfrýja málinu til áfrýjunadómstóls KSÍ.

Þetta snýst svo sem ekki aðeins um okkar eigin hagsmuni. Auðvitað fer þetta illa með okkur KR-inga, hvort sem er í karla- eða kvenna megin. Við teljum einfaldlega að ákvörðun sambandsins standist ekki lög sambandsins. Þessi reglugerð sem sambandið setti í júlí síðastliðnum – við teljum, erum þeirra skoðunar – að hún fari gegn ákvæðum laga knattspyrnusambandsins,“ sagði Páll í viðtali við Stöð 2 fyrr í dag.

Viðtalið má sjá í heild sinni hér að neðan.

„Við værum ekkert að hlaupa fram með svona í gamni okkar. Við teljum að hér sé brotið á skýrum ákvæðum knattspyrnulaga, þar er kveðið á hvernig skuli útkljá Íslandsmótið.“

„Við teljum að í reglugerðinni sé farið út fyrir þær heimildir sem lögin veita og stjórnin taki sér vald sem hún hefur ekki, með því að útkljá mótið með þessum hætti. Með því til dæmis að setja ákveðinn tímaramma, að mótið verði að klárast fyrir 1.desember eins og í þessu tilfelli. Eða þá að hægt sé að ljúka tímabilinu án þess að öll séu búin að leika sína leiki innbyrðis,“ sagði formaðurinn einnig.

Kvennalið KR er fallið niður um deild eftir ákvörðun KSÍ. Hefur liðið farið alls þrisvar í sóttkví á tímabilinu og ekki verið neinn greiði gerður með fyrirkomulaginu í sumar.VÍSIR/VILHELM

Athygli vekur að enginn mótmælti ákvörðun knattspyrnusambandsins í sumar þegar ákveðið var að mótið yrði leikið til 1. desember.

„Það er nú þannig að ef reglugerð stenst ekki skoðun, ef reglugerð á sér ekki stoð í lögum þá getur hún að sjálfsögðu ekki staðið fyrir sínu. Ágreiningurinn kemur vissulega fyrst upp núna en það er ekki rétt að það hafi ekki verið búið að benda KSÍ á þetta. Áður en stjórnin tók ákvörðunina í gær þá var búið að senda stjórninni erindi þess efnis að við teldum ekki að hún hefði þessa heimild,“ svaraði Páll.

„Ég tek það alveg sérstaklega fram að við höfum ákveðna samúð með stjórnarmönnum KSÍ. Þeir eru í erfiðri og hundleiðinlegri stöðu, það leikur sér enginn að gera þetta. En þeim mun mikilvægara er að vanda sig, þeim mun mikilvægara er að fara eftir lögum og stjórnin getur ekki einhliða breytt lögum. Hún er ekki kosin til þess og hefur enga heimild til þess,“ sagði Páll að endingu.

Klippa: KR-ingar telja ákvörðun KSÍ ekki standast lög sambandsins

Tengdar fréttir

Keppni á Íslandsmótinu í knattspyrnu hætt

Knattspyrnusamband Íslands greindi frá því nú rétt í þessu að keppni á Íslandsmótinu í knattspyrnu yrði hætt. Var þetta samþykkt á fundi sambandsins nú í dag.

KR ætlar að áfrýja ákvörðun KSÍ

Stjórn Knattspyrnudeildar KR hefur ákveðið að áfrýja ákvörðun KSÍ um að hætta keppni í Íslandsmótinu í knattspyrnu og láta núverandi stöðutöflu gilda. KR er það lið í Pepsi Max deildinni sem fer hvað verst út úr ákvörðuninni, enda þýðir hún að liðið muni ekki leika í Evrópukeppni næsta tímabil.

KR ætlar að áfrýja ákvörðun KSÍ

Stjórn Knattspyrnudeildar KR hefur ákveðið að áfrýja ákvörðun KSÍ um að hætta keppni í Íslandsmótinu í knattspyrnu og láta núverandi stöðutöflu gilda. KR er það lið í Pepsi Max deildinni sem fer hvað verst út úr ákvörðuninni, enda þýðir hún að liðið muni ekki leika í Evrópukeppni næsta tímabil.

Fram og Magni taka undir með KR

Stjórnir knattspyrnudeilda Fram og Magna hafa sent frá sér yfirlýsingu og líst yfir óánægju með ákvörðun KSÍ frá því í gær um að aflýsa mótinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×