Erlent

Trump endurræsir vélarnar á faraldsfæti

Samúel Karl Ólason skrifar
Donald Trump ætlar að halda fjölda kosningafunda með stuðningsmönnum sínum fram að kosningum.
Donald Trump ætlar að halda fjölda kosningafunda með stuðningsmönnum sínum fram að kosningum. AP/Alex Brandon

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, stefnir að því að endurræsa framboð sitt til endurkjörs á komandi dögum. Frestur forsetans til að ná tökum á kosningabaráttunni við Joe Biden, sem hefur vaxið ásmegin í könnunum, er að renna út. Repúblikanar óttast að tapa Hvíta húsinu og jafnvel öldungadeildinni einnig.

Fylgi þeirra Trumps og Bidens hafði verið mjög stöðugt undanfarnar vikur og jafnvel mánuði en hefur tekið þó nokkrum breytingum á undanförnum dögum.

Samkvæmt líkani tölfræðimiðilsins FiveThirtyEight, sem byggir á könnunum, eru 86 prósent líkur á því að Biden beri sigur úr býtum og 14 prósent líkur á sigri Trumps.

Vísir/GraphicNews

Kosningarnar fara fram þann 3. nóvember en Trump stefnir að því að verja hverjum degi fram að því á ferð um Bandaríkin. Hann mun byrja í Flórída í dag þar sem hann mun hitta stuðningsmenn sína á kosningafundi, þeim fyrsta frá 2. október, þegar Trump greindi frá því að hann hefði smitast af Covid-19.

Þá ætlar Trump til Pennsylvaínu á morgun, Iowa á miðvikudaginn og Norður-Karólínu á fimmtudaginn.

Um mánaðabil hafa Trump og starfsmenn hans varið miklu púðri í að reyna að beina athygli kjósenda frá heimsfaraldri nýju kórónuveirunnar. Smit Trumps hefur þó gert það verulega erfitt. Nærri því 7,8 milljónir Bandaríkjamanna hafa smitast af Covid-19, 215 þúsund hafa dáið og milljónir hafa misst vinnu sína í faraldrinum, eins og bent er á í frétt Reuters.

Demókrötum hefur gengið mjög vel að safna fé undanfarinn misseri og má því til stuðnings benda á að Jaime Harrison, mótframbjóðandi þingmannsins Lindseys Graham í Suður-Karólínu, safnaði 57 milljónum dala á þriðja ársfjórðungi ársins og setti þar með nýtt met. Gamla metið var 38,1 milljón dala en Graham sjálfur lýsti stöðunni nýverið þannig að Harrison væri að „slátra sér“ í fjáröflun.

Lindsey Graham gæti mögulega tapað sæti sínu í öldungadeild Bandaríkjaþings en mótframbjóðandi hans setti nýtt met í fjáröflun á síðasta ársfjórðungi.AP/Stefani Reynolds

Harrison hefur notað þessa fjármuni í umfangsmiklar auglýsingaherferðir og á nú raunhæfan möguleika á því að velta Graham, sem hefur setið þrjú sex ára kjörtímabil og sækist eftir því fjórða, úr sessi.

Þá er útlit fyrir að Demókratar gætu náð fellu í Arizona og tryggt sér bæði öldungadeildarsæti ríkisins og ríkisþingið. Politico segir það ekki hafa gerst í rúm 50 ár en nú eigi Demókratar raunhæfan möguleika á því.

 Þessari þróun vill Trump snúa við og er hann sannfærður um að hann geti það. Starfsmenn framboðs Trump vísa til hæfileika hans til að halda athygli Bandaríkjamanna og er sömuleiðis vonast til þess að nefndarfundir dómsmálanefndar öldungadeildarinnar um tilnefningu Amy Coney Barrett til Hæstaréttar Bandaríkjanna muni hjálpa framboðinu.

Þá vísa starfsmenn Trump til þess hvernig honum tókst að snúa við taflinu á endasprettinum í kosningabaráttunni 2016. Þeir segja að margir kosningafundir Trump fram að kosningum muni hleypa lífi í hans helstu stuðningsmenn og staðhæfa að fjöldi þeirra hafi verið vanmetinn í könnunum og af fjölmiðlum.

Í frétt AP fréttaveitunnar segir þó að staðan í dag sé töluvert frábrugðin stöðunni árið 2016. Sérfræðingar innan Repúblikanaflokksins sem rætt var við segja stöðuna ekki góða.

„Það er langt síðan Donald Trump fékk einhverjar góðar fréttir,“ sagði Alex Contant, einn þeirra Repúblikana sem rætt var við. Hann kom að forsetaframboði Marco Rubio árið 2016. „Þegar Trump hefur fengið góðar fréttir, hefur honum tekist að stíga á þær.“


Tengdar fréttir

Amy Coney Barrett situr fyrir svörum í öldungadeildinni

Amy Coney Barrett, sem Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur tilnefnt í Hæstarétt Bandaríkjanna mun síðar í dag mæta fyrir þingnefnd í öldungadeildinni og svara þar spurningum þingmanna sem eiga síðan að ákveð hvort hún sé hæf til starfans.

Trump segist ónæmur og hvergi banginn

Donald Trump segir að staðfesting lækna hans á því að hann sé ónæmur gagnvart Covid-19 eftir kórónuveirusmit geri það að verkum að hann geti aftur farið á fullt í kosningabaráttunni fyrir forsetakosningarnar í næsta mánuði.

Bandaríkin: Veikur Trump gæti beðið skipbrot

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, smitaðist af Covid-19 og Mike Pence, varaforseti, mætti Kamölu Harris, varaforsetaframbjóðanda, í hefðbundnum kappræðum.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×