Getur ekki beðið um meira en 2-3 færi til að skora á móti liði eins og KA Árni Jóhannsson skrifar 1. október 2020 20:30 Viktor Karl skoraði eina mark Breiðabliks í kvöld. Vísir/HAG
Leikið var í 14. umferð Pepsi Max deild karla í knattspyrnu í kvöld. Breiðablik og KA skildu jöfn á Kópavogsvelli og Viktor Karl Einarsson - markaskorari Blika - var svekktur í leikslok. Hann vildi öll þrjú stigin. „Já ég held að það sé alveg óhætt að segja það svona beint eftir leik þá er þetta mjög svekkjandi. Við vorum með leikinn í okkar hendi en þeir gera svo sem vel í því sem að þeir lögðu upp með. Voru þéttir en á móti liði eins og KA sem liggja vel til baka þá getur þú ekki beðið um meira en tvö til þrjú færi til að skora. Við fáum þessi færi og við verðum bara að nýta þau.“ Viktor fékk eitt af þessum færum og nýtti það vel þegar hann skoraði framhjá Kristijan Jajalo sem átti fínan leik í markinu. Hann segist ekki muna mikið eftir markinu en að þetta hafi snúist um að keyra á vörnina og þegar hann sá á markið lét hann bara vaða með mestum hugsanlegum árangri í nærhornið. Um framhaldið og hvað stigið þýði fyrir Blika sagði Viktor: „Við erum náttúrlega bara í þessari Evrópubaráttu og ég held að eins og leikurinn spilaðist þá tökum við það bara með okkur enda stutt á milli leikja. Við þurfum að taka kraftinn með okkur í næsta leik á móti Fylki á sunnudaginn. Það verður hörkuleikur enda Fylkir með frábært lið og líka í baráttunni um Evrópusæti þannig að við verðum bara að taka allt með okkur og vinna Fylki á sunnudaginn.“ Viktor nefndi að stutt væri á milli leikja en hvernig er það fyrir leikmanninn í Pepsi Max deildinni. Nú er kominn október, það er kalt og allra veðra vona. Er þetta orðið erfitt fyrir leikmennina eða eru menn bara að reyna að harka í gegnum þetta til að klára mótið. „Fyrir mér er þetta draumur. Það eru bara tvær æfingar og svo bara leikur og það er eitthvað sem ég held að allir vilji. Allavega ég. Þetta er bara gaman að spila leikina. Það er endurheimt á morgun, æfing á hinn og svo leikur. Ég get ekki kvartað,“ sagði Viktor að lokum.
Fótbolti Íslenski boltinn Pepsi Max-deild karla Breiðablik KA Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Segir félagið í skítnum Enski boltinn Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Fyrstur síðan David Robinson var og hét Körfubolti Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Fleiri fréttir Hansen með gylliboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjá meira