Viðskipti innlent

Opna ís­búð á Granda: Mitt á milli deserts og bragðarefs

Atli Ísleifsson skrifar
Kjartan Gíslason, súkkulaðigerðarmaður hjá Omnom, segir hugmyndina um ísbúð hafa verið lengi á teikniborðinu.
Kjartan Gíslason, súkkulaðigerðarmaður hjá Omnom, segir hugmyndina um ísbúð hafa verið lengi á teikniborðinu. Vísir/Vilhelm

„Við ákváðum að láta verða af hugmynd sem við höfum verið með á teikniborðinu ansi lengi. Það var svo kannski Covid-ástandið sem varð til þess að við settum í fjórða gír með þetta verkefni.“

Þetta segir Kjartan Gíslason, súkkulaðigerðarmaður og annar stofnandi súkkulaðigerðarinnar Omnom, en til stendur að opna ísbúð í rýminu fyrir framan súkkulaðigerðina við Hólmaslóð á Granda í Reykjavík á morgun,

Kjartan segir að Omnom hafi verið með verslun við Hólmaslóð allt frá því að súkkulaðigerðin flutti þangað árið 2016.

„Síðan í maí hefur henni hins vegar verið sjálflokað þar sem það hefur ekki verið neinn straumur hingað niður eftir. Þá fórum við að ræða það, við félagarnir, að núna væri kannski rétti tíminn til að skella í eina ísbúð.“

Frestuðu opnun vegna annarrar bylgjunnar

Kjartan segir að forsvarsmenn súkkulaðigerðarinnar hafi opnað „pop-up“ ísbúð á þjóðhátíðardeginn 17. júní, meðal annars til að kanna hver viðbrögðin yrðu og þá hafi hafi verið um 500 manns fyrir utan.

„Við ætluðum svo að opna í kringum verslunarmannahelgi, í kringum Pride, en svo kom bakslag í allt aftur svo við ákváðum að bíða aðeins með þetta. En síðustu tvær helgar höfum við verið með svona „mjúka opnun“ og verðum með aftur núna um helgina. Svo verðum við vonandi komin á fullt fjör frá og með næstu viku.“

Kjartan Gíslason og Hildur Halldórsdóttir, rekstrarstjóri Omnom.Vísir/vilhelm

Mitt á milli deserts á veitingastað og bragðarefs

Kjartan segir hugmyndina hafa verið að vera með ísbúð og vera með ísrétti. „Við erum kannski ekki að bjóða upp á þetta klassíska sem flestar ísbúðir eru að bjóða uppi, heldur verðum við einhvers staðar á bilinu veitingaeftirréttur og yfir í bragðaref.

Eins og staðan er nú þá erum við ekki að framleiða ísinn sjálf en stefnum á að gera það þegar fram í sækir. Það er draumurinn að geta fiktað aðeins meira með hann. Núna erum við aðallega að búa til sósur, kurl og sælgæti til að seta ofan á. Þetta verða þá réttir sem eru innblásnir af súkkulaðistykkjunum okkar.“

Kjartan segir að síðustu „mjúku opnanirnar“ verði á morgun frá 16 til 22 og svo aftur um helgina, frá 14 til 22. „Svo verðum við fyrst með eftirmiðdagsopnanir á meðan við erum að koma okkur af stað,“ segir Kjartan.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×