Kuldi og væta í kortunum Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 22. september 2020 07:12 Reykjavík í rigningu Foto: Vilhelm Gunnarsson/Vilhelm Gunnarsson
Það verður frekar kalt á landinu í dag og víða dálitlar skúrir, jafnvel sums staðar él um norðanvert landið, að því er fram kemur í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands. Þá verður fremur hæg suðvestlæg eða breytileg átt en eftir hádegi gengur hann í norðaustan með 10 til 18 metrum á sekúndu norðvestantil. Austantil á landinu verður þurrt og bjart fram eftir degi. Hiti á bilinu 3 til 8 stig að deginum. Á morgun er spáð norðlægri átt 8 til 15 metrum á sekúndu en hægari vindur um landið norðaustanvert. Það verður éljagangur fyrir norðan og dálítil væta suðaustantil en bjart að mestu suðvestanlands. Svo kólnar heldur, hitinn verður víða á bilinu 0 til 5 stig yfir daginn. Seint annað kvöld hlýnar við norðurströndina með rigningu eða slyddu. Veðurhorfur á landinu: Suðvestlæg eða breytileg átt 3-10 m/s, en gengur í norðaustan 10-18 norðvestantil eftir hádegi. Víða dálitlar skúrir, en sums staðar él um landið norðanvert, og lengst af úrkomulítið austantil. Hiti 3 til 8 stig yfir daginn. Norðlæg átt 8-15 á morgun, en hægari um landið norðaustanvert. Dálítil væta suðaustantil, og él fyrir norðan, en léttir til suðvestanlands. Hiti 0 til 5 stig. Rigning eða slydda við norðurströndina seint annað kvöld. Á miðvikudag: Norðlæg átt 8-15 m/s, en hægari um landið NA-vert. Dálítil rigning SA-til, og él fyrir norðan, en léttir til SV-lands. Hiti 0 til 5 stig að deginum. Rigning eða slydda við N-ströndina seint um kvöldið. Á fimmtudag: Norðlæg átt 8-13 og dálitlar skúrir eða él N-lands, en víða léttskýjað um landið S-vert. Lægir og styttir upp síðdegis. Hiti 1 til 8 stig yfir daginn, mildast syðst. Á föstudag: Hæg breytileg átt og víða bjartviðri. Hiti 2 til 8 stig, en um og undir frostmarki fyrir norðan. Vaxandi suðaustanátt og þykknar upp S- og V-lands seinnipartinn. Á laugardag: Ákveðin suðlæg átt og rigning, en úrkomulítið NA-til. Hiti 6 til 11 stig. Á sunnudag: Suðlæg átt og skúrir S- og V-lands, en léttskýjað um landið NA-vert. Hiti 4 til 9 stig.
Veður Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Erlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Fleiri fréttir Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Sjá meira