Lífið samstarf

Karlarnir duglegri í kynlífstækjakaupum

Hermosa.is
Kynlífstækjaverslunin Hermosa býður 20 % afslátt  af öllum múffum og sogtækjum.
Kynlífstækjaverslunin Hermosa býður 20 % afslátt  af öllum múffum og sogtækjum.

„Viðskiptavinahópurinn kom mér á óvart. Ég hélt að konur yrðu í meirihluta en karlarnir standa sig ekki síður. Það fannst mér dálítið áhugavert,“ segir Kristín Björg Hrólfsdóttir, annar eigandi kynlífstækjaverslunarinnar Hermosa. Hún tekur þó fram að karlarnir kaupi ekki eingöngu fyrir sjálfa sig. „Ég sé sjaldan stelpurnar kaupa fyrir karlana en þeir eru aftur á móti mjög duglegir að kaupa fyrir þær. Ég skammaði manninn minn um daginn fyrir að vera ekki eins duglegur að kaupa en hann sagðist vera kominn með heilan lager fyrir mig svo ég gæti ekki kvartað,“ segir hún hlæjandi en þau hjónin reka verslunina saman.

„Við opnuðum verslunina fyrir tveimur árum og það gerðist eiginlega óvart. Við ætluðum að selja kynlífsdagatöl fyrir jólin 2018 en hlutirnir æxluðust þannig að við stofnuðum verslun og sjáum ekki eftir því. Þetta er súper skemmtilegt verkefni og hefur gengið mjög vel. Við ákváðum strax að bjóða upp á fría heimsendingu fyrir allar pantanir og við höldum vöruverðinu ávallt í lágmarki. Viðskiptavinurinn er númer eitt. Við settum upp nafnlaust umsagnakerfi svo fólk getur gefið umsagnir um vörurnar og þjónustuna,“ segir Kristín.

Satisfyer tækin fást með sogi og einnig með sogi og titringi. Hermosa.is

Heimsending samdægurs

„Við erum stanslaust að hugsa hvernig við getum gert betur gagnvart viðskiptavininum og erum alltaf að bæta við þjónustuna. Má þar nefna lengri skilafrest en lög gera ráð fyrir, frí heimsending á öllum vörum, vildarklúbb og „live“ spjall á vefsíðunni. Nýjasta er svo hraðari vöruafhending og meiri sveigjanleiki á afhendingu,“ útskýrir Kristín.

Hægt er að fá vöru heimsenda samdægurs á höfuðborgarsvæðinu ef pantað er fyrir kl 12, sækja í vöruhús á dagvinnutíma og á valdar N1 stöðvar seinnipartinn og á kvöldin sem er hentugt fyrir þá sem vilja grípa pakkann með á leiðinni heim úr vinnunni eða vilja ekki þurfa að vera heima á ákveðnum tíma. Til viðskiptavina á landsbyggðinni er varan nær undantekningarlaust tilbúin til afhendingar daginn eftir.

Tenga múffurnar koma í mismunandi styrkleika eftir því hversu mikla örvun menn þurfa.

Múffur og sogtæki vinsælustu vörurnar nú á 20 % afslætti

„Múffur eru vinsælastar hjá körlunum og hægt að nota hvort sem er í einleik eða með maka, en sogtækin eru vinsælustu vörurnar fyrir konur,“ segir Kristín. „Satisfyer sogtækin hafa verið gríðarlega vinsæl. Við mælum klárlega með þeim fyrir alla með sníp vegna þess að sogtilfinningin sem tækið veitir er allt öðruvísi örvun en hefðbundin kynlífstæki veita. Þrýstibylgjur líkja til að mynda eftir munnmökum. Einnig koma tækin í mismunandi gerðum, sum eru aðeins með sog á meðan önnur eru bæði með sogi og titringi. Þau eru sturtuheld og auðvelt að þrífa og við mælum með vatnsleysanlegu sleipiefni með satisfyer vörunum.“

Til eru margar gerður af múffum, til dæmis með titringi, hita eða sogstillingum.

Heat múffan frá Satisfyer er til dæmis með hitastillingum og titringi og því er hægt að hita múffuna áður en leikurinn hefst. Tenga múffurnar njóta hvað mestra vinsælda en það skemmtilega við þær er að þær koma í mismunandi styrkleika þannig að allir geta fundið eitthvað fyrir sig eftir því hversu mikla örvun menn þurfa. Múffurnar frá Tenga eru til dæmis tilvaldar til þess að æfa upp þolið, ef menn vilja geta enst lengur,“ segir Kristín.

20% afsláttur er af öllum múffum og sogtækjum á Hermosa.is til 2. september.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×