Innlent

Samþykktu frekari verkföll með miklum meirihluta

Andri Eysteinsson skrifar
Frá baráttufundi Eflingar í vikunni.
Frá baráttufundi Eflingar í vikunni. Vísir/Vilhelm

Félagsmenn stéttarfélagsins Eflingar sem greiddu atkvæði um verkföll hjá einkareknum skólum og hjá sveitarfélögum öðrum en Reykjavíkurborg samþykktu vinnustöðvanir í atkvæðagreiðslu. Munu vinnustöðvanir að óbreyttu hefjast 9. mars næstkomandi.

Afgerandi meirihluti félagsmanna greiddu atkvæði með verkfallsboðuninni. Hjá félagsmönnum sjálfstætt starfandi skólum samþykktu 90% boðunina en 9% voru mótfallnir. Kjörsóknin var 52% en 152 af 291 félagsmanni greiddi atkvæði og var því samúðarverkfall samþykkt með miklum meirihluta.

Sömu sögu var að segja hjá félagsmönnum hjá Kópavogsbæ, Seltjarnarnesbæ, Mosfellsbæ, Hveragerðisbæ og Sveitarfélaginu Ölfuss en kjörsókn þar var 48% en 131 félagsmaður greiddi atkvæði. 87% þeirra félagsmanna voru samþykkir verkfallsboðun en 11% voru mótfallnir.

„Þessar niðurstöður sýna hve mikinn vilja fólk hefur til að leggja lóð sitt á vogarskálar í baráttunni fyrir bættum kjörum. Þetta eru hópar sem eru í sambærilegum störfum og félagsmenn okkar í verkfalli gagnvart Reykjavíkurborg. Sömu óbærilega illa launuðu störfin, við óboðlegt álag og aðstæður. Sveitarfélögin og stofnanirnar þar sem börnin okkar og aldraðir foreldrar dvelja eru stærstu láglaunavinnustaðir landsins. Tími breytinga er kominn, engin heiðarleg manneskja getur neitað því lengur,” sagði Sólveig Anna Jónsdóttir formaður í tilkynningu Eflingar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×