Atalanta með annan fótinn í átta liða úr­slit Meistara­deildarinnar

Leikmenn Atalanta fagna í kvöld.
Leikmenn Atalanta fagna í kvöld. vísir/getty

Atalanta gerði sér lítið fyrir og rúllaði yfir Valencia, 4-1, er liðið spilaði sinn fyrsta leik í útsláttarkeppni Meistaradeildarinnar í kvöld.







Flestir bjuggust við jöfnu og spennandi einvígi en Ítalarnir voru ekki á sama máli. Hans Hateboer skoraði fyrsta markið á 16. mínútu og skömmu fyrir hlé tvöfaldaði Josip Ilicic forystuna.

Veislan á San Siro hélt áfram í síðari hálfleik. Remo Freuler kom Atalanta í 3-0 og á 62. mínútu varð staðan orðinn 4-0 er Hans Hateboer skoraði annað mark sitt í leiknum.







Denis Cheryshev náði að klóra í bakkann fyrir Valencia á 67. mínútu en lokatölur 4-1 sigur Atalanta sem er með pálmann í höndunum fyrir síðari leikinn á Mestalla.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira