Sport

Í beinni í dag: Domin­os Körfu­bolta­kvöld og bikarslagur í há­skóla­bæ

Anton Ingi Leifsson skrifar
Kjartan Atli og félagar verða á skjám landsmanna í kvöld.
Kjartan Atli og félagar verða á skjám landsmanna í kvöld. vísir/vilhelm

Tvær beinar útsendingar eru á dagskrá Stöðvar 2 Sports í kvöld.

Oxford og Newcastle mætast í endurteknum leik í enska bikarnum en liðin gerðu markalaust jafntefli er þau mættast um þar síðustu helgi á heimavelli Newcastle.

Klukkan 21 fer svo Dominos Körfuboltakvöld af stað þar sem þeir Kjartan Atli Kjartansson og spekingar hans gera upp síðustu umferð í Dominos-deildunum.

Allar beinu útsendingar næstu daga má sjá á heimasíðu Stöðvar 2.

Beinar útsendingar dagsins:

20.00 Oxford - Newcastle (Stöð 2 Sport 2)

21.00 Dominos Körfuboltakvöld karla (Stöð 2 Sport)




Fleiri fréttir

Sjá meira


×