Fjörugur síðari hálf­leikur er Leicester og Chelsea skildu jöfn

Anton Ingi Leifsson skrifar
Vardy og Kante í leiknum í dag.
Vardy og Kante í leiknum í dag. vísir/getty

Leicester og Chelsea gerðu 2-2 jafntefli er liðin mættust í fyrsta leik 25. umferðarinnar í enska boltanum.

Staðan var markalaus í hálfleik en eftir einungis 66 sekúndur í síðari hálfleik stangaði Antonio Rudiger hornspyrnu Mason Mount í netið.

Adam var ekki lengi í paradís því átta mínútum síðar var allt orðið jafnt. Harvey Barnes komst upp vinstri vænginn, skot hans fór af varnarmanni og í netið.







Fjörið í síðari hálfleik hélt áfram því á 64. mínútu komst Leicester yfir. Þar var að verki vinstri bakvörðurinn Ben Chillwell eftir fyrirgjöf.

Rudiger var hins vegar ekki hættur en hann var að spila sinn 100. leik fyrir Chelsea. Hann jafnaði metin á 71. mínútu. Aftur eftir fast leikatriði frá Mount en nú var það aukaspyrna.







Fleiri urðu mörkin ekki og lokatölur 2-2. Leicester er áfram í 3. sætinu og Chelsea í 4. sætinu en átta stig skilja liðin að.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira