Stoð­sending frá Gylfa í endur­komunni | Öll úr­slit dagsins

Anton Ingi Leifsson skrifar
Gylfi, Mina og Richarlison fagna jöfnunarmarkinu.
Gylfi, Mina og Richarlison fagna jöfnunarmarkinu. vísir/getty

Gylfi Sigurðsson var mættur aftur í byrjunarlið Everton eftir meiðsli er liðið vann 3-2 endurkomusigur á Watford á útivelli í dag.

Það byrjaði ekki vel fyrir Everton en liðið var 2-0 undir eftir 42 mínútur. Adam Masina skoraði eftir tíu mínútur og á 42. mínútu tvöfaldaði Roberto Pereyra forystuna.

Öllu dramanu í fyrri hálfleik var ekki lokið. Yerry Mina jafnaði metin á annarri mínútu uppbótartímans og eftir hornspyrnu Gylfa á fjórðu mínútu uppbótartíma fyrri hálfleiks gerði Mina sitt annað mark.







Everton lék einum færri síðustu nítján mínúturnar eftir að Fabian Delph fékk sitt annað gula spjald en það kom ekki að sök því Theo Walcott skoraði sigurmark Everton í uppbótartíma. Lokatölur 3-2.

Everton er í 9. sætinu með 33 stig en Watford er í 19. sætinu með 23 stig. Gylfi lék í 67 mínútur.

Sheffield United vann góðan 1-0 útisigur á Crystal Palace. Sigurmarkið kom eftir hornspyrnu þar sem Vicente Guaita, markvörður Palace, fór með boltann inn í sitt eigið mark.

Nýliðarnir halda áfram að gera frábæra hluti en þeir eru í 5. sæti deildarinnar með 36 stig, fimm stigum frá Meistaradeildarsti en Palace er í 13. sætinu.





West Ham kastaði frá sér tveggja marka forystu gegn Brighton á heimavelli. Hamrarnir komust í 2-0 og 3-1 en gestirnir komu til baka og náðu í stig.

West Ham er í 15. sæti deildarinnar með 26 stig en Brighton er tveimur sætum neðar með stigi minna.

Bournemouth vann lífsnauðsynlegan sigur á Aston villa, 2-1. Bournemouth komst úr fallsæti með sigrinum en liðið nú í 16. sætinu með 25 stig, sæti fyrir ofan Villa sem er með stigi minna.





Newcastle og Norwich gerðu svo markalaust jafntefli. Newcastle í 10. sætinu en Norwich á botninum.

Öll úrslit dagsins:

Leicester - Chelsea 2-2

Bournemouth - Aston Villa 2-1

Crystal Palace - Sheffield United 0-1

Liverpool - Southampton 4-0

Newcastle - Norwich 0-0

Watford - Everton 2-3

West Ham - Brighton 3-3

17.30 Man. United - Wolves

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira