Matic allt í öllu á Eti­had er City komst í úrslit þrátt fyrir tap

Anton Ingi Leifsson skrifar

Manchester United hafði betur gegn grönnunum í City, 1-0, er liðin mættust í síðari undanúrslitaleik liðanna í enska deildarbikarnum.

City vann fyrri leik liðanna á Old Trafford 3-1 og því dugði sigurinn í kvöld ekki til fyrir United. Það verða því City og Aston Villa sem mætast í úrslitaleiknum.







Fyrsta og eina mark leiksins kom á 35. mínútu og það má segja að það hafi komið gegn gangi leiksins. Eftir aukaspyrnu féll boltinn fyrir Nemanja Matic sem þrumaði boltanum laglega í netið.

Þettta var fyrsta skot United á markið í leiknum en City hafði nokkrar góðar sóknir sem þeir nýttu sér illa. 1-0 fyrir United í hálfleik.

Það var áfram kraftur í United-liðinu í síðari hálfleik en þeir þurftu eitt mark í viðbót til þess að koma leiknum í framlengingu.

Það hjálpaði ekki United er markaskorarinn Matic fékk sitt annað gula spjald og þar með rautt stundarfjórðungi fyrir leikslok.







Tíu leikmenn United náðu ekki að skora og lokatölur kvöldsins 1-0 en samanlagt 3-2 sigur City.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira