Viðskipti innlent

Pétur Thor tekur við sem fram­kvæmda­stjóri Freyju

Atli Ísleifsson skrifar
Pétur Thor Gunnarsson.
Pétur Thor Gunnarsson. Freyja

Pétur Thor Gunnarsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Freyju. Hann hefur starfað sem sölu- og markaðsstjóri fyrirtækisins frá árinu 2015.

Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir að Ævar Guðmundsson, eigandi Freyju og fráfarandi framkvæmdastjóri, taki að sér starf stjórnarformanns.

„Pétur Thor er viðskiptafræðingur að mennt með áherslu á alþjóðamarkaðsfræði. Hann hefur starfað á íslenskum dagvörumarkaði í 24 ár og hefur víðtæka reynslu á því sviði. Pétur Thor hóf störf 18 ára hjá Ölgerðinni og starfaði þar við nánast öll störf er tengdust söludeild fyrirtækisins allt þar til hann hætti störfum þar í lok árs 2014 þá sem sölu- og rekstrarstjóri. Pétur Thor hóf störf hjá Freyju í byrjun árs 2015 sem sölu- og markaðsstjóri og gengdi því starfi í u.þ.b. eitt ár eða þangað til hann hóf að einbeita sér meira að ýmsum verkefnum er snérust að rekstri fyrirtækisins. Síðan þá hefur Pétur Thor komið meira og meira að flest öllum þáttum í daglegum rekstri félagsins,“ segir í tilkynningunni.

Pétur Thor er B.Sc. gráðu í viðskiptafræði með áherslu á alþjóðamarkaðsfræði frá Háskólanum í Reykjavík. Hann er giftur Erlu Rós Gylfadóttur hugbúnaðasérfræðingi hjá Reiknistofu bankanna og eiga þau þrjú börn.

Freyja er íslenskt fjölskyldufyriræki sem hefur verið starfandi í 102 ár og í eigu sömu fjölskyldunnar í 40 ár á þessu ári, að því er fram kemur í tilkynningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×