Erlent

Segjast hafa drepið Soleimani til að stöðva yfirvofandi árás

Kjartan Kjartansson skrifar
Pompeo utanríkisráðherra Bandaríkjanna sagði að meint árás sem Soleimani á að hafa haft á prjónunum hefði ógnað lífum Bandaríkjamanna og múslima í Miðausturlöndum.
Pompeo utanríkisráðherra Bandaríkjanna sagði að meint árás sem Soleimani á að hafa haft á prjónunum hefði ógnað lífum Bandaríkjamanna og múslima í Miðausturlöndum. Vísir/EPA

Mike Pompeo, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, fullyrðir að Bandaríkjastjórn hafi ákveðið að ráða Qassem Soleimani, yfirmann sérsveita íranska byltingarvarðarins, af dögum til að koma í veg fyrir „yfirvofandi árás“ sem hefði sett bandaríska borgara í Miðausturlöndum í hættu. Donald Trump forseti tísti um að Soleimani hefði átt að drepa fyrir löngu.

Soleimani og fimm aðrir, þar á meðal leiðtogi íraskrar hersveitar, lét lífið í drónaárás Bandaríkjahers á bílalest hans á flugvelli í Bagdad í nótt. Stjórnvöld í Teheran hafa heitið grimmilegum hefndum fyrir Soleimani sem einn valdamesti maðurinn í Íran og náinn Æjatolla Khameini æðstaklerki.

Pompeo réttlæti morðið í viðtalið við bandarískar sjónvarpsstöðvar í dag og sagði ákvörðunina hafa verið byggða „mati á grundvelli leyniþjónustuupplýsinga“. Hann vildi þó ekki ræða nánar um árásirnar sem Soleimani átti að hafa lagt á ráðin um en að nauðsynlegt hafi verið að drepa hann í gærkvöldi til að stöðva þær, að sögn Reuters-fréttastofunnar.

„Hann lagði á ráðin um að grípa til aðgerða á svæðinu, stórra aðgerða eins og hann lýsti þeim, sem hefðu sett tugi ef ekki hundruð bandarískra lífa í hættu. Við vitum að hún var yfirvofandi,“ fullyrti Pompeo sem hélt því einnig fram á Twitter að Bandaríkjastjórn legði áherslu á að draga úr spennu.

Trump forseti hefur ekki mikið tjáð sig um morðið á Soleimani. Nú um miðjan dag sendi forsetinn frá sér tvö tíst þar sem hann sakaði herforingjann um að bera ábyrgð á dauða eða örkumlun þúsunda Bandaríkjamanna yfir lengri tíma. Soleimani hafi lagt á ráðin um að myrða enn fleiri en hafi verið gómaður.

„Það hefði átt að taka hann úr umferð fyrir mörgum árum!“ tísti Bandaríkjaforseti.

Repúblikanar hafa fagnað ákvörðun Trump um að ráða Soleimani af dögum en demókratar hafa lýst efasemdum um það hafi verið rétt, þrátt fyrir að Soleimani hefði mörg líf á samviskunni. Max Rose, fulltrúadeildarþingmaður demókrata og fyrrverandi hermaður, sagðist þannig vilja frekar upplýsingar um leyniþjónustuupplýsingarnar sem leiddu til aðgerðarinnar og hversu aðsteðjandi árás á að hafa verið. Þá sagðist hann vilja vita hvernig ríkisstjórnin hefði búið sig undir viðbrögð íranskra stjórnvalda.

Erlendir leiðtogar hafa hvatt til stillingar. Antonio Guterres, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, segist hafa djúpar áhyggjur af þróun mála. Heimsbyggðin hafi ekki efni á annarri styrjöld við Persaflóa.

Vladímír Pútín, forseti Rússlands, eins helsta bandalagsríkis Írana fordæmdi morðið í símtali við Emmanuel Macron, forseta Frakklands í dag. Varaði hann við að aðgerðin gæti ýft upp ástandið í heimshlutanum á alvarlegan hátt. Rússneska varnarmálaráðuneytið lofaði einnig þátt Soleimani í baráttunni gegn hryðjuverkasamtökunum Ríki íslams í Sýrlandi og Írak.

Stjórnvöld í Írak og Tyrklandi hafa einnig fordæmt aðgerðir Bandaríkjastjórnar.


Tengdar fréttir

Engin áhrif á bensínverð hér á landi

Engin hreyfing hefur orðið á bensínverði hér á landi í kjölfar þess að Bandaríkin réðu einn valdamesta mann í Íran af dögum í nótt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×