Lífið

Sagði ekki orð við dómarana fyrir prufuna en sló í gegn með geggjuðum flutningi

Stefán Árni Pálsson skrifar
Sheldon Riley kom öllum í salnum á óvart með prufunni.
Sheldon Riley kom öllum í salnum á óvart með prufunni.

Sheldon Riley kom heldur betur á óvart með áheyrnarprufu sinni í America´s Got Talent á dögunum.

Riley sagði ekki eitt orð við dómnefndina fyrir flutninginn en hann flutti lagið idontwannabeyouanymore með Bille Eilish og gerði það einstaklega vel.

Eftir prufuna kom í ljós að hann væri frá Sidney í Ástralíu. Hann segist ávallt hafa verið feiminn og lítið talað við fólk yfirleitt.

Hér að neðan má sjá þessa frábæru prufu en dómarnir sögðu allir já eftir umræddan flutning.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×