Innlent

Einn greindist á veiru­fræði­deildinni og annar við landa­mæra­skimun

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Einn greindist með kórónuveiruna við landamæraskimun síðasta sólarhringinn. Þá greindist einn hjá veirufræðideild Landspítalans.
Einn greindist með kórónuveiruna við landamæraskimun síðasta sólarhringinn. Þá greindist einn hjá veirufræðideild Landspítalans. Vísir/Vilhelm

Tveir greindust með kórónuveiruna síðasta sólarhringinn, einn við landamæraskimun og einn á veirufræðideild Landspítalans samkvæmt nýjustu tölum á Covid.is. Þrír greindust með veiruna í gær. Fjórir þeirra sem greinst hafa á landamærunum eru smitandi en fjórtán eru það ekki, þ.e. með gömul smit en mælast enn með mótefni gegn veirunni.

Virk smit á landinu eru enn þá níu líkt og í gær. Þannig virðast tveir hafa náð bata milli daga. Þá voru 856 sýni tekin við landamæraskimun síðasta sólarhringinn, sex hjá Íslenskri erfðagreiningu og 130 hjá veirufræðideild Landspítala.

180 eru nú í sóttkví og staðfest smit frá upphafi faraldurs 1832. 1813 hafa náð bata. Alls hafa tuttugu og tveir greinst með veiruna frá því að skimanir hófust við landamærin 15. júní, þar af þrír lögreglumenn á Suðurlandi sem smituðust af erlendum ferðamönnum í starfi.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×