Sport

Heimsleikunum í CrossFit seinkað: Fara í fyrsta lagi fram 17. ágúst

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Sara Sigmundsdóttir ætlaði sér stóra hluti á heimsleikunum en nú veit hún ekki frekar en aðrir hvenær þeir munu fara nákvæmlega fram.
Sara Sigmundsdóttir ætlaði sér stóra hluti á heimsleikunum en nú veit hún ekki frekar en aðrir hvenær þeir munu fara nákvæmlega fram. Mynd/Instagram/wodapalooza

Það þarf kannski ekki að koma mikið á óvart miðað við ástandið í Bandaríkjunum en yfirmenn heimsleikanna í CrossFit hafa ákveðið að seinka þeim um að minnsta kosti þrjár vikur.

CrossFit sendi frá sér stutta tilkynningu í nótt þar sem kemur fram að þeir þurfi að breyta tímasetningu leikanna.

„Vegna ferðatakmarkana og aðstæðna sem við stjórnum ekki þá höfum við þurft að færa til tímasetningu CrossFit heimsleikanna. Leikarnir geta aldrei byrjað fyrir 17. ágúst. Við munum senda frá okkur frekari upplýsingar í næstu viku,“ segir í tilkynningunni eins og sjá má hér fyrir neðan.

Kórónufaraldurinn virðist vera enn í sókn á mörgum stöðum í Bandaríkjunum og staðan þar er allt önnur en til dæmis í Evrópu þar sem tekist hefur að hamla útbreiðslu veirunnar.

Heimsleikarnir áttu að hefjast 29. júlí í Madison í Wisconsin fylki en það var þegar búið að færa leikana til Aromas í Kaliforníu fylki og skera verulega niður keppendafjöldann.

Aðeins 30 keppendur af hvoru kyni fá að vera með þessu sinni og ekki verður keppt í liðakeppni eða í aldursflokkum. Fullt af CrossFit fólki, sem var búið að tryggja sér þátttökurétt á heimsleikana í ár misstu þar með farseðilinn sinn.

Fullt af öflugum keppendum hafa einnig tilkynnt að þeir munu ekki taka þátt í heimsleikunum í ár ef að það verði ekki alvöru breytingar á forystu CrossFit samtakanna.

Þarna fer fremst í flokki íslenska CrossFit konan Katrín Tanja Davíðsdóttir en í hópnum eru einnig aðrar heimsþekktar CrossFit stjörnur eins og Noah Ohlsen, Chandler Smith, Brooke Wells og Amanda Barnhart.

Þetta verða síðustu Reebok heimsleikarnir því Reebok fyrirtækið ákvað að hætta samstarfinu þegar samningurinn rennur út eftir þetta tímabil. Ástæðan er aðallega rasísk hegðun einvaldsins Greg Glassman og stífni samtakanna til að taka undir kröfur um jafnrétti.

CrossFit samtökin hafa reyndar lofað betrumbótum í vinnubrögðum sínum sem og að leita sér aðstoðar sérfræðinga við að uppræta þá starfshætti sem hafa verið gagnrýndir svo harðlega af CrossFit samfélaginu. Hvernig verður staðið að því og hversu mikið breytist við það verður að koma í ljós.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×