Viðskipti innlent

Stefna að því að samkomulag við alla aðila sé í höfn 29. júní

Andri Eysteinsson skrifar
Flugvélar Icelandair við Leifsstöð
Flugvélar Icelandair við Leifsstöð Vísir/Vilhelm

Viðræður Icelandair Group og íslenskra stjórnvalda vegna mögulegrar lánalínu eða tryggingar láns til félagsins eru á áætlun. Kjarasamningar við stéttarfélög flugmanna og flugvirkja hafa verið samþykktir og viðræður standa yfir við Boeing vegna MAX-vélanna. Tímalína félagsins hefur þó verið uppfærð.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Icelandair Group um stöðu fjárhagslegrar endurskipulagningar félagsins.

Endurskipulagningin stendur yfir með því markmiði að tryggja rekstrargrundvöll félagsins til framtíðar en eins og alþjóð veit fór Icelandair illa út úr faraldri kórónuveirunnar sem varð til þess að nær allt flug á heimsvísu lagðist af. Icelandair Group vinnur að málinu í samstarfi við stéttarfélög, Boeing, lánveitendur, flugvélaleigusala, birgja og íslensk stjórnvöld auk fleiri aðila.

Í tilkynningunni kemur fram að stjórnvöld hafi lýst yfir vilja til að taka þátt í fjárhagslegri endurskipulagningu félagsins að uppfylltum skilyrðum og er þar gerð krafa um að félagið nái markmiðum um öflun nýs hlutafjár.

Þá lýsir félagið yfir áhyggjum yfir því að ekki hafi tekist að semja við Flugfreyjufélag Íslands en samningar við flugmenn og flugvirkja hafa verið samþykktir en óljóst er hvort frekari gangur verði á viðræðum við Flugfreyjufélagið.

Viðræðum við Boeing vegna MAX vélanna miðar ágætlega en félagið segir í tilkynningu að leiðin sem kynnt hefur verið sé ákjósanlegasta leið félagsins til að tryggja hagsmuni til lengri tíma.

Á hluthafafundi þann 22. maí sl. kynnti félagið tímalínu þar sem fram kemur að stefnt sé að því að samkomulag við alla hagaðila liggi fyrir í dag, þann 15. júní. Þessi tímalína hefur verið uppfærð og er nú gert ráð fyrir að samkomulag við aðila liggi fyrir þann 29. júní nk. Gert er ráð fyrir að hlutafjárútboð hefjist í kjölfarið. Þetta kom fram í tilkynningu frá félaginu sem birt var í kauphöll í dag.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×