Golf

Rory McIlroy vildi að allir færu í kórónuveirupróf en í staðinn var Players mótinu aflýst

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Rory McIlroy gengur á milli hola á Players meistaramótinu í gær.
Rory McIlroy gengur á milli hola á Players meistaramótinu í gær. Getty/Mike Ehrmann

Players golfmótinu var aflýst í nótt en þá höfðu kylfingar lokið fyrsta hring og það leit út fyrir að PGA ætlaði að klára alla fjóra dagana. Það breyttist hins vegar snögglega.

Players mótið er eitt stærsta golfmót hvers árs þótt ekki teljist það sem risamót. Mótið átti að fara fram án áhorfenda.

PGA tók þá ákvörðuna að aflýsa mótinu eftir fyrsta hring af fjórum og sömu sögu má segja af þremur næstu mótum á mótaröðinni eða Valspar Championship, WGC-Dell Technologies Match Play og Valero Texas Open sem öllum hefur nú verið aflýst.

„Örar breytingar á aðstæðum kalla á það að Players meistaramótinu verði aflýst. Öll PGA mót fram yfir Valero Texas Open eru einnig úr sögunni,“ sagði í tilkynningu frá PGA samtökunum.

„Það er mikil eftirsjá eftir þessu móti. Við höfum hins vegar heitið því frá byrjun að vera ábyrgðarfullir, hugulsamir og með allt upp á borðinu í okkar ákvörðunartöku. Við gerðum allt sem í okkar valdi stóð til að búa til öruggt umhverfi fyrir okkar kylfinga svo við gætum klárað mótið og með því að gefa áhugafólki nauðsynlega hvíld frá núverandi ástandi,“ segir í yfirlýsingunni.

Frestunin kom aðeins nokkrum klukkutímum eftir að efsti maður heimslistans, Norður Írinn Rory McIlroy, kallaði eftir því að allir kylfingar og kylfusveinar á Players meistaramótinu færu í kórónuveirupróf og ef að einhver fengi jákvæða niðurstöðu þá yrði að hætta við mótið.

„Það þurfa allir að fara í próf. Ef við ætlum að halda áfram að spila á PGA mótaröðinni þá þurfa allir kylfingar og þeir sem koma að mótunum að fara í sýnatöku svo við pössum upp á það að enginn okkar sé með kórónuveiruna,“ sagði Rory McIlroy og bætti við:

„Allir vita af þú getur verið með kórónuveiruna án þess að sýna einkenni en um leið smitað einhvern annan sem getur síðan orðið mjög veikur,“ sagði McIlroy.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×