Fær ekki fjáraukalagafrumvarpið - algjör trúnaðarbrestur Jón Hákon Halldórsson skrifar 28. september 2012 16:27
Trúnaðarbrestur ríkir milli fjárlaganefndar Alþingis og Ríkisendurskoðunar vegna Oracle málsins svokallaða. Sá trúnaðarbrestur hefur leitt til þess að meirihluti fjárlaganefndar vill ekki láta Ríkisendurskoðun hafa fjáraukalagafrumvarpið til umsagnar, enn sem komið er. Nefndin fundaði um málið í morgun. „Það var ákveðið í morgun að bíða aðeins með frekari samskipti við ríkisendurskoðun á meðan menn væru að ná betra trausti og trúnaði þar á milli,“ segir Lúðvík Geirsson, varaformaður fjárlaganefndar, í samtali við Vísi. „Það situr í mönnum ýmislegt og ýmsum spurningum ósvarað af þessum samskiptum sem hafa verið síðustu daga og upplýsingum sem hafa komið fram. Og menn hafa viljað skoða þau mál betur og hvernig á að taka á því innan fjárlaganefndar og ég veit að stjórnskipunar- og eftirlitsnefndin er með þau mál til skoðunar líka,“ segir Lúðvík. Því hefðu menn talið að það væri rétt að hinkra aðeins með frekari samskipti við Ríkisendurskoðun. Lúðvík játar því að það sé kominn upp trúnaðarbrestur milli fjárlaganefndar Alþingis og Ríkisendurskoðunar. „Það er óhætt að segja það. Formaðurinn hefur lýst því yfir og meirihluti nefndarinnar samsinnir honum í því,“ segir Lúðvík, en Björn Valur Gíslason er formaður fjárlaganefndar. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins í fjárlaganefnd voru ósammála meirihlutanum varðandi þetta mál.
Mest lesið Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Innlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Innlent Trump hjólar í páfa Erlent Fleiri fréttir Deilt um orðalag á kjörseðli, trúnaðarbrestur og vinsældir ráðherra Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Miðflokkurinn úr leik í Árborg Krefja Ingu svara við leikskólaáformum Samfylkingarinnar „Við lítum þetta mál mjög alvarlegum augum“ Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi „Þetta er erfiður mánudagur“ Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Drengurinn kominn heim til sín Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Gera ekki aðra atlögu Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Sjá ekki fyrir endann á ástandinu í fangelsunum Flugstjórinn þögull sem gröfin Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Sjá meira