Játaði morðið í Tulsa Andri Ólafsson skrifar 28. september 2012 18:45
Maðurinn sem grunaður er um að hafa skotið Kristján Hinrik Thorson í Bandaríkjunum í byrjun mánaðarins til bana viðurkenndi fyrir vini sínum skömmu eftir atburðinn að hafa skotið Hinrik. Hinn grunaði í málinu heitir Jermaine Jackson en hann hafði undir höndum 22kalibera skambyssu af sömu gerð og notuð var í skotárásinni. Á meðal þess sem kemur fram í gögnum lögreglu er að Jackson hafi rétt fyrir árásina gengið upp að bílstjórahlið bílsins sem Kristján Hinrik var í og öskrað á bílstjórann að hann hafi næstum því keyrt á hann. Því næst hafi hann tekið upp skambyssu og skotið alls 10 sinnum inn í bílinn með þeim afleiðingum að bæði bílstjórinn og Kristján Hinrik létust. Jackson hljóp því næst af vettvangi. Það virðist hafa spurst hratt út að Jackson væri morðinginn. Því í gögnum málsins kemur fram að móðir Kristjáns Hinriks fékk mörg símtöl morguninn eftir árásina frá skólafélögum hans með ábendingum um að Jackson bæri ábyrgð á dauða hans. Í gögnunum kemur fram að eitt af vitnum lögreglunnar sé vinur Jacksons, sá segir að hann hafi viðurkennt fyrir sér í nokkru uppnámi að hafa skotið Hinrik. En það hefur áður komið fram að Jackson og Hinrik þekktust. „Guð minn góður, ég vissi ekki hvað ég átti að gera, ég var reiður," er haft eftir Jackson, sem reyndi síðan að fara huldu höfði en lögreglan handtók hann skömmu síðar í Arkansasríki. Athygli vekur að samkvæmt ákærunni í málinu sem fréttastofa hefur einnig undir höndum er að Jackson er ákærður fyrir tvö morð en til vara er hann hinsvegar ákærður fyrir morðið á bílstjóranum en aðeins ákærður fyrir manndráp í tilfelli Kristjáns Hinriks, sem bendir til þess að framburður Jacksons og skilningur lögreglu sé á þá leið að Jackson hafi ekki viljandi skotið Kristján Hinrik. Lögreglan vill þó ekki tjá sig um það að svo stöddu. Verði hann fundinn sekur á jacson yfir höfði sér lífstíðarfangelsi og jafnvel dauðarefsingu.
Mest lesið „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Innlent Óhugnanlega margir að leysa vandamálin með töflum Innlent „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Segir lögreglumenn á Vestfjörðum áhyggjufulla Innlent Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Innlent Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Erlent „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Innlent Brikk lokað í óákveðinn tíma Innlent Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Erlent Fleiri fréttir „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Segir lögreglumenn á Vestfjörðum áhyggjufulla Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Óhugnanlega margir að leysa vandamálin með töflum „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Ræddu ofbeldi í skólum í borgarstjórn: Segir kennara vera í legghlífum í vinnunni Sigurvin kallaður út vegna Hildar Ekki tilraun til manndráps að taka sambýliskonuna kverkataki Dæmdir morðingjar gætu fengið að annast fatlað fólk „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Sakar Ölmu um að hafna Litla spítalanum fyrir fram Skandall að menn afpláni ekki í fangelsi vegna plássleysis Stefna á að hefja leit í nóvember Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Bein útsending: Fyrsta skóflustunga að Stóra-Hrauni Dómurinn feli í sér tilmæli til þingsins Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Komi ekki til greina að hætta við talnakvarðann Kallað eftir rannsóknum vegna geðrofslyfs og áskorun til ráðherra Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Endurmeta fyrirkomulag RS-bólusetninga næstu árin Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Brikk lokað í óákveðinn tíma Skakkur á rafskútu 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Sjá meira