Nú meiðast menn í hverjum leik 3. mars 2007 11:30 Sigurður Ingimundarson bindur vonir við að þeir Jón Norðdal Hafsteinsson og Tony Harris verði klárir í leikinn á móti Grindavík á mánudaginn. MYND/Vilhelm
Það er eins og Keflvíkingar þurfi að ganga í gegnum allt hugsanlegt mótlæti í körfuboltanum í vetur og staða liðsins hefur vissulega borið keim af því. Liðið hefur verið óheppið með erlenda leikmenn og skipt þrisvar um Kana og einu sinni um Evrópuleikmann. Fyrirliði liðsins, Magnús Þór Gunnarsson, lenti í því að missa allt sitt í bruna og nú til að bæta enn á hafa meiðsli hrannast upp í síðustu leikjum. Bakvörðurinn Arnar Freyr Jónsson meiddist illa í sigurleik á Hamar/Selfoss á sunnudaginn og á fimmtudagskvöldið missti liðið tvo lykilmenn, Bandaríkjamanninn Tony Harris og Jón Norðdal Hafsteinsson út af ,meidda í fyrri hálfleik. „Það er hópferð hjá Keflavíkurliðinu upp á sjúkrahús,“ sagði Sigurður Ingimundarson, þjálfari Keflavíkurliðsins, í léttum tón þegar Fréttablaðið forvitnaðist um meiðsli leikmanna liðsins. „Ég held að þetta sé ekkerr alvarlegt en það er leiðinlegt svona rétt fyrir úrslitakeppni að menn séu að detta í svona meiðsli,“ segir Sigurður sem lítur þó á jákvæðu hliðarnar. „Við verðum bara að taka á þessu og vinna okkur í gegnum þetta. Það fengu að spreyta sig menn sem hafa lítið fengið að spila í vetur og það var það jákvæða við þetta því við eigum fullt af mönnum,“ sagði Sigurður en nafni hans Sigurðsson skoraði 15 stig á 13 mínútum og hinn 17 ára gamli Þröstur Leó Jóhannsson var með 10 stig, 4 stoðsendingar og 3 varin skot á sínum 16 mínútum.
Mest lesið Trúðurinn Arenas í vondum málum eftir handtöku Körfubolti Hamilton segir Ferrari þurfa nýjan ökumann því hann sé gagnslaus Formúla 1 Dagskráin í dag: Stórleikir í Bestu og Manchester United Sport Þessir þurfa að heilla Amorim Enski boltinn „Lélegasti leikurinn okkar í sumar“ Íslenski boltinn Brynjólfur Andersen með tvö gegn Wrexham Fótbolti Kom ekkert annað til greina en West Ham hjá Wilson Enski boltinn Ísland mátti þola stórt tap Körfubolti Luka framlengir til þriggja ára í Los Angeles Körfubolti Stórt tap á Ítalíu Körfubolti Fleiri fréttir Trúðurinn Arenas í vondum málum eftir handtöku Grindavík fær leikstjórnanda frá Grikklandi Stórt tap á Ítalíu Ísland mátti þola stórt tap Luka framlengir til þriggja ára í Los Angeles Fékk vægt áfall: „Með fullt af missed calls“ Stjórnendur NBA reyna að sannfæra Real Madrid og fleiri forrík félög KR sækir ungan bakvörð „Sýna að maður eigi það skilið“ Segir að þeim besta í heimi sé skítsama Álftanes bætir Bandaríkjamanni við hópinn „Númer eitt, tvö og þrjú að knúsa þau sem mest“ Callum Lawson aftur til Valsmanna Þrír verða heima meðan landsliðið fer til Ítalíu Skora á KKÍ að sniðganga Ísrael: „Íþróttahreyfingin ekki undanskilin ábyrgð“ Semple til Grindavíkur NBA stjarna sökuð um að stela tugum milljóna frá spilavítum Gamall Stjörnumaður kemur aftur til Íslands og semur við Álftanes Kynlífsleikfangi hent inn á völlinn í miðjum leik „Erum að einblína á það sem er að gerast á vellinum“ Í þrjátíu mánaða fangelsi fyrir að hrella Caitlin Clark Bað hennar í íþróttahúsinu þar sem allt byrjaði Mario fer ekki á EM – fimm dottnir úr hópi Íslands Gjörbreyttur Luka hefur tekið á því í ræktinni NBA reynslubolti handtekinn fyrir ávísunarfals LeBron hitti umboðsmann Jokic í Frakklandi Landsliðsmenn buðust til að ræða við Craig: „Var ekki að fara grátbiðja hann í annað sinn“ Kristófer sendir frá sér yfirlýsingu: „Ekki ætlun mín að valda usla“ Kristófer opnar sig um ágreininginn: „Vonbrigði og vanvirðing“ Shaq lofar að mæta í kjól ef Gobert verður valinn Sjá meira