Sprenging orðið í fjölda þeirra sem sitja inni fyrir kynferðisbrot Jóhannes Stefánsson skrifar 15. ágúst 2013 20:48 Helgi Gunnlaugsson segir refsipólitík hafa breyst. Mynd/Heiða Helgadóttir Andlitsmynd/Pjetur
Sprenging hefur orðið í fjölda þeirra sem sitja inni fyrir kynferðisbrot og mikil fjölgun hefur einnig orðið hjá þeim sem sitja inni fyrir ofbeldis- og fíkniefnabrot. Fjöldi fanga í íslenskum fangelsum hefur aukist verulega frá aldamótum. En þetta er ekki endilega vegna þess að Íslendingar fremja meira af afbrotum en áður. „Ástæðan liggur ekki endilega í því að þessum brotum hafi fjölgað svo mjög í íslensku samfélagi frá aldamótum," segir Helgi Gunnlaugsson prófessor við Háskóla Íslands. „Ástæðan er fyrst og fremst í því að þolendur ofbeldisbrota, sér í lagi þolendur kynferðisbrota eru að stíga fram miklu meir nú en áður, það er að segja, þolendur eru að stíga miklu meira fram og kæra nú heldur en áður. Varðandi fíkniefnin að þá sjáum við meiri frumkvæðisvinnu og meira eftirlit lögreglu í að upplýsa fíkniefnamál," segir Helgi Hann bætir svo við: „Í þriðja lagi er breytt refsipólitík. Við erum að sjá þyngri refsingar og lengri dóma og þetta eru ástæður sem við sjáum að baki fjölda fanga í fangelsum á íslandi." Árið 2000 voru 219 manns í afplánun í íslenskum fangelsum en árið 2012 voru þeir 389. Aukningin hefur hlutfallslega verið allra mest í hópi þeirra sem afplánar fangelsisdóm fyrir kynferðisbrot, en árið 2000 afplánuðu 10 fangelsisrefsingu fyrir slík brot. Árið 2012 voru þeir orðnir 47. Það er aukning upp á 370 prósent. Þessa aukningu má meðal annars rekja til vitundarvakningar um málaflokkinn, en fleiri stíga nú fram og leggja fram kærur en áður. Flestir sitja hinsvegar inni í íslenskum fangelsum fyrir fíkniefnabrot, en fjölgun fanga hefur verið mest í þeim brotaflokki. Þannig eru 28% allra fanga sem sitja inni í íslenskum fangelsum þar fyrir fíkniefnabrot. Fjöldi þeirra sem koma í afplánun vegna fíkniefnabrota hefur á þessu tímabili tvöfaldast. Það er ljóst að íslensk fangelsi eru löngu sprungin og anna ekki þörfinni. En hvað þarf að gera í málaflokknum? „Það þarf að fylgja eftir þeim áforum sem hafa verið í gangi undanfarið um að byggja nýtt fangelsi. Ástandið hefur verið mjög erfitt í fangelsismálunum og það þarf að koma þeim málum í betra horf," segir Helgi Gunnlaugsson.
Mest lesið Bjarni segir af sér sem fjármálaráðherra Innlent Ótrúlegt sjónarspil á Grindavíkurvegi Innlent Vanhæfur þegar hann dæmdi mann til að greiða 142 milljónir Innlent Grunaður um að hafa brotið á konu um borð í Polar Nanoq Innlent Borgarstjóri á hvolfi hátt yfir Reykjavík Innlent Tvö þúsund manns heimsóttu Guðna í síðasta sinn Innlent Enginn ávinningur annar en einfaldlega hrært vatn Innlent „Hver sofnaði á verðinum?“ Innlent Ekki lagaheimild fyrir einhliða viðskiptaþvingunum gegn Ísrael Innlent Ísraelar sagðir hafa drepið gísla og ríflega 200 Palestínumenn Erlent Fleiri fréttir Ótrúlegt sjónarspil á Grindavíkurvegi Borgarstjóri á hvolfi hátt yfir Reykjavík Vanhæfur þegar hann dæmdi mann til að greiða 142 milljónir Tvö þúsund manns heimsóttu Guðna í síðasta sinn Ekki lagaheimild fyrir einhliða viðskiptaþvingunum gegn Ísrael Sækja tvo slasaða eftir bílveltu Telur að lokast hafi fyrir gíginn að hluta Grunaður um að hafa brotið á konu um borð í Polar Nanoq Blóðbað við björgun gísla og bein útsending frá Grindavíkurvegi Áhlaupinu lokið en annað ekki útilokað „Verið að ráðast á lýðræðið og boðar aldrei gott“ „Hver sofnaði á verðinum?“ Vinstri græn geti farið í sögubækurnar Brennó, pönnukökubakstur og stígvélakast á landsmóti „Þetta er nánast allt eins og við áttum von á“ Grindavíkurvegur undir hraun og alvarleg árás á forsætisráðherra Skrifaði á sig í gríð og erg og fær engar bætur eftir uppsögn Hraun runnið að Grindavíkurvegi Enginn ávinningur annar en einfaldlega hrært vatn Borgarstjórinn tekinn í listflug á flugsýningu Engin orð sem lýsa deginum örlagaríka í Grindavík Siggi stormur stendur við spána Lyfjarisinn veitir offitufræðslu: „Hvaðan á þetta að koma?“ Telur kjördæmin of stór og vill jafna vægi atkvæða Þyngri dómur fyrir að nauðga barnungri mágkonu 12 þúsundasti íbúi Árborgar heiðraður Dómar vegna manndrápsins í Hafnarfirði þyngdir Krísufundur VG, ónýt stúka og tónleikar í beinni „Finnum að það er upplifun einhverra íbúa að okkur sé alveg sama“ Fluttur á sjúkrahús eftir árekstur nærri Hvalfjarðargöngum Sjá meira