Steinar Aubertsson: Ég er saklaus 26. september 2012 11:41 Steinar Aubertsson í Héraðsdómi Reykjaness í morgun. mynd/anton "
Ég er saklaus af þessu," sagði Steinar Aubertsson við dómara í morgun en hann er ákærður fyrir að hafa skipulagt innflutning á rúmlega hálfu kílói af kókaíni, ásamt tveimur öðrum. Steinar var um tíma eftirlýstur af Interpol vegna málsins, en var framseldur hingað til lands í byrjun september. Héraðsdómur Reykjaness úrskurðaði Steinar í gæsluvarðhald eftir að hann kom til landsins en Hæstiréttur snéri þeim úrskurði við þann 17. september síðastliðinn. Ekki þóttu nægar sannanir fyrir því að almannahagsmunir krefðust þess að hann yrði hnepptur í varðhald. Hann hefur því verið laus síðan þá. Alls eru fimm ákærðir í málinu, en fyrirtaka í málinu gegn hinum fjórum fór fram í lok ágúst. Steinar var þá ekki á landinu og því var gefin út framhaldsákæra gegn honum sem var tekin fyrir í dag. Steinar er ákærður fyrir að hafa skipulagt og fjármagnað innflutning á rúmlega hálfu kíló af kókaíni. Par, kona á þrítugsaldri og maður á fertugsaldri, eru einnig ákærð fyrir að skipuleggja smyglið. Í ákæru segir að unnt hafi verið að framleiða tæplega 2 kíló af kókaíni úr efninu. Steinar og maðurinn neita báðir sök, en konan játaði að hafa ein skipulagt smyglið. Hún fékk móður sína til að flytja ferðatösku hingað til lands frá Danmörku sem kókaínið var í. Móðirin var stöðvuð við hefðbundið eftirlit á Keflavíkurflugvelli og var kókaínið falið í töskunni. Parið, sem ákært er fyrir innflutninginn ásamt Steinari, er einnig ákært fyrir tvö önnur smygl. Í öðru þeirra eru þau grunuð um að hafa skipulagt smygl á 350 grömmum af kókaíni frá Spáni hingað til lands, og fengið par á fertugsaldri í verkið. Þau eru einnig ákærð fyrir að sækja efnin til Spánar en þau voru stöðvuð á Keflavíkurflugvelli. Þá er parið einnig ákært fyrir að hafa fjármagnað og skipulagt innflutning á 140 grömmum af kókaíni frá Danmörku en kókaínið var afhent einstaklingi í Kaupmannahöfn á þessu ári, en ekkert varð af innflutningnum þar sem sá einstaklingur hvarf frá verkinu. Kærasti konunnar játaði sök að hluta við þingfestinguna í ágúst, þar sem hann sagðist hafa staðið einn að innflutningnum. Aðalmeðferð í málinu fer fram í Héraðsdómi Reykjaness þann 3. október næstkomandi.
Mest lesið „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Innlent Óhugnanlega margir að leysa vandamálin með töflum Innlent „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Segir lögreglumenn á Vestfjörðum áhyggjufulla Innlent Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Innlent Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Erlent „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Innlent Brikk lokað í óákveðinn tíma Innlent Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Erlent Fleiri fréttir „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Segir lögreglumenn á Vestfjörðum áhyggjufulla Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Óhugnanlega margir að leysa vandamálin með töflum „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Ræddu ofbeldi í skólum í borgarstjórn: Segir kennara vera í legghlífum í vinnunni Sigurvin kallaður út vegna Hildar Ekki tilraun til manndráps að taka sambýliskonuna kverkataki Dæmdir morðingjar gætu fengið að annast fatlað fólk „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Sakar Ölmu um að hafna Litla spítalanum fyrir fram Skandall að menn afpláni ekki í fangelsi vegna plássleysis Stefna á að hefja leit í nóvember Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Bein útsending: Fyrsta skóflustunga að Stóra-Hrauni Dómurinn feli í sér tilmæli til þingsins Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Komi ekki til greina að hætta við talnakvarðann Kallað eftir rannsóknum vegna geðrofslyfs og áskorun til ráðherra Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Endurmeta fyrirkomulag RS-bólusetninga næstu árin Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Brikk lokað í óákveðinn tíma Skakkur á rafskútu 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Sjá meira