Tveir hælisleitendur tengdust hryðjuverkasamtökum Hulda Hólmkelsdóttir skrifar 1. febrúar 2017 20:14 Þann 30. janúar síðastliðinn birti greiningardeild Ríkislögreglustjóra nýtt mat á hættu af hryðjuverkum. Vísir/Valgarður
Tveir einstaklingar sem sótt hafa um alþjóðlega vernd hér á landi reyndust tengjast hryðjuverkasamtökum. Einstaklingarnir eru farnir úr landi. Þetta staðfestir Ásgeir Karlsson hjá greiningardeild ríkislögreglustjóra við fréttastofu RÚV.Þann 30. janúar síðastliðinn birti greiningardeild Ríkislögreglustjóra nýtt mat á hættu af hryðjuverkum. Þar kemur fram að einstaklingar með tengsl við hryðjuverkasamtök hafi komið til Íslands á árunum 2015 og 2016 og óskað eftir alþjóðlegri vernd. Þá segir einnig að upplýsingar séu fyrir hendi um að Ísland hafi verið notað sem „gegnumstreymisland“ manna frá Norður-Ameríku á leið til og frá þáttöku í bardögum í Mið-Austurlöndum í nafni ISIS. Niðurstaða greiningardeildarinnar er að hættustig á Íslandi sé metið í meðallagi og hefur hættustigið ekki breyst frá árinu 2015. Hættustig í meðallagi er skilgreint svo: Almennt er talið að ekki sé hægt að útiloka hættu á hryðjuverkum vegna ástands innanlands eða í heimsmálum. Árið 2016 komu 1133 hælisleitendur til Íslands. Þar af voru um 800 frá löndum Evrópu eða um sjötíu prósent. Lögreglunni er ekki kunnugt um að á Íslandi hafi myndast hópar eða samfélög sem aðhyllast herskáan íslamisma eða annars konar ofbeldisfulla öfgahyggju. „Sú hætta er fyrir hendi á Íslandi sem annars staðar að áróðursmenn hryðjuverkasamtaka reyni að fá fólk til liðs við þau og hvetji til óhæfuverka. Í því samhengi skal bent á að greiningardeild hefur í fyrri skýrslum um mögulega hryðjuverkaógn hér á landi fremur horft til einstaklinga sem sækja innblástur til öfgasamtaka en til skipulagðra hóp,“ segir í skýrslunni.
Mest lesið Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Segja boltann hjá stjórnvöldum Innlent Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Fleiri fréttir Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Sjá meira