Innlent

Vél lenti á Keflavíkurvelli vegna veikinda ungs drengs

Stefán Árni Pálsson skrifar
Flugvél frá Quatar Airways þurfti að lenda á Keflavíkurflugvelli í fyrradag vegna veikinda ungs drengs sem var um borð.

Vélin var á leið frá Doha í Katar til Houston í Bandaríkjunum þegar drengurinn veiktist.

Ákveðið var að flytja hann á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til skoðunar. 

Þar var ekki talið ráðlegt að drengurinn og fjölskylda hans héldu áfram för sinni og fór vélin því aftur í loftið án þeirra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×