Innlent

Svæfð eftir að kókaín fannst í leggöngum

Konan fór í gegnum „græna hliðið“ á Keflavíkurflugvelli.
Konan fór í gegnum „græna hliðið“ á Keflavíkurflugvelli.
Tuttugu og eins árs spænsk kona var dæmd í tólf mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness í dag fyrir að smygla tæplega hálfu kílói af kókaíni til landsins í byrjun október. Konan var stöðvuð á Keflavíkurflugvelli.

Konan faldi kókaínið í leggöngum sínum. Hún játaði að hafa flutt efnin til landsins en sagðist hafa verið burðardýr og hafa verið neydd til að fara í ferðina af óþekktum aðilum.

Í skýrslutöku hjá lögreglu sagði hún að tveir menn frá Spáni, annar kunningi hennar, hafi krafist þess af henni að hún kæmi fíkniefnunum fyrir í leggöngum sínum í þeim tilgangi að flytja þau til Íslands. Sagðist hún ekki hafa getað komið þeim fyrir og hafi þeir þá tekið hana með valdi, annar sest klofvega ofan á hana og hinn troðið þeim inn í leggöngin.

Mennirnir hafi síðan haft í hótunum við hana, ekið henni heim þar sem hún bjó með móður sinni, sagt henni að pakka niður og beðið hennar fyrir utan heimili hennar. Þeir hafi svo ekið henni á flugvöllinn og afhent henni flugmiða og fylgt henni þar til hún var komin í gegnum öryggiseftirlitið.

Í dómnum segir að konan hafi ekki gert neinar tilraunir til að gefa sig fram við lögreglu eða tollverði á flugvellinum í Alicante á Spáni, né á Íslandi, heldur hafi hún ætlað að fara í gegnum græna hliðið við komuna til landsins.

Konan sagði að „einhver maður hafi átt að sækja hana“ á Keflavíkurflugvöll en hún hafi verið handtekin við komuna til landsins. Sagði hún að mennirnir hafi hótað henni að gera móður hennar og systur mein  hlýddi hún þeim ekki.

Við líkamsleit tollvarða fannst ein pakkning af kókaíni í nærbuxum hennar, um 100 grömm, gat hún ekki losað sig við hina pakkninguna og var hún því flutt á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja og var þar tekin ákvörðun um að flytja hana á kvennadeild Landspítalans þar sem hún var svæfð til og fíkniefnin sótt af lækni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×