Svæfð eftir að kókaín fannst í leggöngum 20. desember 2013 11:08 Konan fór í gegnum „græna hliðið“ á Keflavíkurflugvelli.
Tuttugu og eins árs spænsk kona var dæmd í tólf mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness í dag fyrir að smygla tæplega hálfu kílói af kókaíni til landsins í byrjun október. Konan var stöðvuð á Keflavíkurflugvelli. Konan faldi kókaínið í leggöngum sínum. Hún játaði að hafa flutt efnin til landsins en sagðist hafa verið burðardýr og hafa verið neydd til að fara í ferðina af óþekktum aðilum. Í skýrslutöku hjá lögreglu sagði hún að tveir menn frá Spáni, annar kunningi hennar, hafi krafist þess af henni að hún kæmi fíkniefnunum fyrir í leggöngum sínum í þeim tilgangi að flytja þau til Íslands. Sagðist hún ekki hafa getað komið þeim fyrir og hafi þeir þá tekið hana með valdi, annar sest klofvega ofan á hana og hinn troðið þeim inn í leggöngin. Mennirnir hafi síðan haft í hótunum við hana, ekið henni heim þar sem hún bjó með móður sinni, sagt henni að pakka niður og beðið hennar fyrir utan heimili hennar. Þeir hafi svo ekið henni á flugvöllinn og afhent henni flugmiða og fylgt henni þar til hún var komin í gegnum öryggiseftirlitið. Í dómnum segir að konan hafi ekki gert neinar tilraunir til að gefa sig fram við lögreglu eða tollverði á flugvellinum í Alicante á Spáni, né á Íslandi, heldur hafi hún ætlað að fara í gegnum græna hliðið við komuna til landsins. Konan sagði að „einhver maður hafi átt að sækja hana“ á Keflavíkurflugvöll en hún hafi verið handtekin við komuna til landsins. Sagði hún að mennirnir hafi hótað henni að gera móður hennar og systur mein hlýddi hún þeim ekki. Við líkamsleit tollvarða fannst ein pakkning af kókaíni í nærbuxum hennar, um 100 grömm, gat hún ekki losað sig við hina pakkninguna og var hún því flutt á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja og var þar tekin ákvörðun um að flytja hana á kvennadeild Landspítalans þar sem hún var svæfð til og fíkniefnin sótt af lækni.
Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Fleiri fréttir Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Sjá meira