„Vigdís er mesta viðundrið í pólitík“ Jakob Bjarnar skrifar 20. desember 2013 15:42 Jónas & Vigdís, engir perluvinir.
Samantekt á ummælum Jónasar Kristjánssonar, fyrrverandi ritstjóra, um þingkonuna Vigdísi Hauksdóttur, formann fjárlaganefndar, er athyglisverð. Maður nokkur heitir Benedikt Halldórsson og er bankamaður. Hann hefur tekið saman á Facebook nokkur ummæli Jónasar Kristjánssonar um Vigdísi Hauks. Benedikt er á því að Jónas leggi Vigdísi í einelti og þegar safnið er skoðað gæti sú hugmynd hvarflað að fleirum: „Vigdís er mesta viðundrið í pólitík,“ er dæmi um ein ummælin, sem öll fylgja hér fyrir neðan. „Þessum manni líður greinilega mjög illa,“ segir Vigdís um Jónas eftir að hafa skoðað safn Benedikts í samtali við blaðamann Vísis. Reyndar liggur við að Vigdís verði orðlaus en það stendur ekki lengi. „Ég held að hann hljóti að vera vinalaus. Eys úr sínum myrkustu hugarskotum inn á þetta jonas.is. Ég er náttúrlega ekki sálfræðingur en það hlýtur náttúrlega að vera eitthvað að? Einkennilegt að velja sér það að vera svörtu megin í tilverunni en vilja ekki sjá björtu hliðarnar.” Jónas.is er eitt allra vinsælasta blogg landsins og í ljósi þess er ekki úr vegi að spyrja Vigdísi hvort hún hafi hugleitt að kæra hann fyrir meiðyrði? Vigdís segir þann möguleika ekki hafa hvarflað að sér einfaldlega vegna þess að hún les þetta ekki. „Ég les hann ekki og það er bara langbest. Hann getur varla átt marga vini maður sem er svona innrættur. En, ég óska Jónasi og hans fjölskyldu gleðilegrar jólahátíðar. Og vona að hann finni frið í hjarta sínu.“Nokkur ummæli Jónasar um Vigdísi í gegnum tíðina„Vigdís Hauksdóttir er minni máttar. Svoleiðis fólk sogar að sér „einelti““.09/10/2011„Alþingi er skipað undirmálsfólki, sjáið Vigdísi Hauksdóttur.“ 21/10/2010„Verst lætur Vigdís Hauksdóttir, sem líka hefur að sérgrein að misþyrma orðtökum í íslenzku máli.“ 24/09/2012„Vigdís Hauksdóttir fjallaði um íslenzkt orðfæri, enda nýbúin af stinga ekki „höfðinu í steininn““. 16/09/2011„Fræg fyrir afspyrnu vont málfar.“ 19/11/2011„Gladdist áðan, þegar ég sá, að Mörður Árnason skerti málfrelsi Vigdísar Hauksdóttur.“ 15/02/2011„Verst lætur Vigdís Hauksdóttir, sem líka hefur að sérgrein að misþyrma orðtökum í íslenzku máli.“ 24/09/2012„Hægri hönd Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar frá Kögun er Vigdís Hauksdóttir. Hún er hvað eftir annað í fréttum vegna æsings á landsfrægu hrognamáli.“ 04/12/2012„Vigdís er mesta viðundrið í pólitík.“ 09/11/2013„En nú hefur hin froðufellandi Vigdís Hauksdóttir“....10/12/2013„Munurinn á Sigmundi Davíð og Vigdísi Hauksdóttur er, að Sigmundur er mæltur á íslenzku, en Vigdís ekki. Að öðru leyti er ofsinn svipaður.“ 02/01/2013„Hin mjög svo ógeðfellda Vigdís Hauksdóttir“....09/12/2013„Strax er „teygjanlegt“ orð, sem þýðir einhvern tíma á kjörtímabilinu, segir Vigdís Hauksdóttir. Í örfáum orðum sést siðleysi hennar.“ 04/10/2013„Vigdís hefur verið mönnum skemmtiefni, þegar bilaðir frasar renna viðstöðulítið upp úr henni. En hún er ekki venjulegur jóker, heldur hættuleg lýðræðinu.“ 14/08/2013....“hefur framganga hennar orðið tilefni frétta um málvillur. Það kallar hún einelti og kvartar sáran í kranaviðtali Fréttatímans í dag. Passar illa við óvægni hennar og ber vitni um dómgreindarbrest.“ 11/01/2013„TOSSI Á ÞINGI. Brynjar Níelsson þingmaður er í samkeppni í rugli við Vigdísi Hauksdóttur.“ 24/07/2013„Illskeytt Vigdís og ofurlyginn Sigmundur Davíð“...30/06/2013„Hún er ætíð æst og nú heimtar hún „Berufsverbot“ að hætti Hitlers. Hún er ekki í lagi.“ 11/11/2011„Verst er útkoma andstöðunnar, þar sem vitgrannir Morfís-drengir og Vigdís vaða uppi með skrípalátum og frekju.“ 02/12/2010„Vigdís Hauksdóttir þingmaður er ofsótt. Segir það sjálf.“ 28/05/2013
Mest lesið Önnur sprunga opnast Innlent Að ráðast, eða ráðast ekki, á Moskvu Erlent Leggur til að frídögum verði fækkað um tvo Erlent Fallegt og ekkert smágos Innlent Dómstóll ESB staðfestir niðurstöðu varðandi vörumerkið Iceland Innlent Hyggst ekki segja af sér þrátt fyrir reiði vegna Epstein-listans Erlent Handtekin fyrir að stunda kynlíf með munkum og kúga af þeim fé Erlent Fyrst vöruskemman, nú göngustígar: „Mórallinn er bara ömurlegur“ Innlent Skoða hvort gosið breyti heimsókn von der Leyen Innlent Eldgosið í heimsmiðlunum: „Ísland: Rýmt“ Innlent Fleiri fréttir Fundu tennur í aftursætinu á bílaþvottastöð Landa í Grindavíkurhöfn og botna ekkert í lokunum Mikið eldingaveður á Vestfjörðum Eldgosið í heimsmiðlunum: „Ísland: Rýmt“ Enn eitt gosið hafið og íbúar tala um Groundhog Day Kæmi mér ekki á óvart að þetta væri síðasta Sundhnúkagosið Fyrst vöruskemman, nú göngustígar: „Mórallinn er bara ömurlegur“ Skoða hvort gosið breyti heimsókn von der Leyen Dómstóll ESB staðfestir niðurstöðu varðandi vörumerkið Iceland Fallegt og ekkert smágos Önnur sprunga opnast Samhjálp „hálfnuð í mark“ og endurskipuleggur Kaffistofuna Göngumaður slapp ómeiddur úr sjálfheldu við Hestskarð Ólöf Tara yrði hissa en þakklát að gangan sé tileinkuð henni „Ekki bara fávísir hitabeltisbúar sem eru að detta á hausinn“ Yfirleitt Íslendingar sem aki utan vega Skipstjóri handtekinn talinn vera undir áhrifum „Ég var örugglega getinn í Land Rover“ „Valda fleiri húðkrabbameinum en sígarettur lungnakrabbameini“ Göngumaður í sjálfheldu við Hestskarð Ákall um ljósabekkjabann og gengið fyrir Ólöfu Töru Enn rís land í Svartsengi Engu mátti muna á að alvarlegur árekstur yrði á þjóðveginum Hleypti líklega óvart úr Kominn úr lífshættu eftir stunguárás við Mjóddina Gísli Jóns í tveimur útköllum frá miðnætti „Það gæti tekið bara fimmtán mínútur að kála þeim“ Maðurinn er fundinn Ekki sekur um að hafa valdið dauða manns í Kiðjabergi Fagnar áherslum ríkisstjórnarinnar í sjávarútvegi Sjá meira