Koma fljúgandi til að krækja í hangikjötið úr torfkofanum Kristján Már Unnarsson skrifar 16. desember 2013 20:44
Hangikjötið sem fjölskylda á sunnanverðum Vestfjörðum reykir í gömlu torfhúsi er svo vinsælt að dæmi eru um að menn komi á flugvél að sunnan til að krækja sér í kjötlæri. Þetta kom fram í fréttum Stöðvar 2 í kvöld. Staður í Reykhólasveit er ekki beint í alfaraleið. Jörðin er við mynni Þorskafjarðar um tíu kílómetra vestan Reykhóla. Staður státar af 150 ára gamalli kirkju og álíka gömlu torfhúsum, sem voru endurbyggð fyrir sex árum. Þarna búa þrjár kynslóðir, hjónin Eiríkur Snæbjörnsson og Sigfríður Magnúsdóttir, ásamt dóttur sinni, Rebekku Eiríksdóttur, tengdasyninum Kristjáni Ebenezerssyni og dætrum þeirra, Védísi og Anítu. Torfhúsin eru talin hafa verið nýtt frá fyrstu tíð til að reykja matvæli fyrir heimilið.Fjölskyldan við Reykskemmuna, sem er í 150 ára gömlu torfhúsi.Myndir/Baldur Hrafnkell Jónsson, Stöð 2.Um síðustu aldamót hóf fjölskyldan að selja reyktar afurðir undir merkjum bændafélagsins Beint frá býli. Ljósmynd sem Reykhólavefurinn birti á dögunum af mönnum sem komu á flugvél segir sitt um vinsældir hangikjötsins en þeir komu fljúgandi frá Akranesi til að sækja kjötið. Aðrir aka um langan veg. „Það kom einn frá Ísafirði áðan að ná sér í læri,” sagði Eiríkur.Þessir komu á flugvél.Mynd/Reykhólavefurinn.Þegar spurt er um hvað tryggi gott hangikjöt segjast þau nota bæði tað og birki við reykinguna en svo bara þær aðferðir sem Íslendingar hafa brúkað í gengum aldirnar. „Svo er náttúrlega munur á þessu kjöti sem er reykt við svona aðstæður og því sem reykt í þessum ofnum, sem tekur einn til tvo sólarhringa að reykja, hér hengur þetta. Þetta er hangikjöt. Hitt er ekki hangikjöt, - það er reykt kjöt,” segir Eiríkur. Það var lítið orðið eftir af hangikjötinu þegar við vorum að mynda og raunar er það orðið uppselt fyrir þessi jól. „Við höfum alltaf selt upp,” sagði Eiríkur.Staður í Reykhólasveit.
Mest lesið Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Innlent Segja boltann hjá stjórnvöldum Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Innlent Fleiri fréttir Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Sjá meira