Hampiðjan til Litháens 13. október 2005 15:21
Hundrað störf hafa verið lögð af í Reykjavík við flutning verksmiðju Hampiðjunnar til Litháens. Þetta er tæpur fjórðungur áætlaðra starfa í álverinu á Reyðarfirði. Hampiðjan er rótgróið fyrirtæki, komið á áttræðisaldur og framleiðir meðal annars net og kaðla. Um árabil hefur aðalverksmiðjan verið í 10 þúsund fermetra húsi við Bíldshöfða í Reykjavík en framleiðslan hefur verið seld um víða veröld. Eitt sinn iðaði það allt af lífi og vélarnar gengu en nú ríkir þögnin ein. Og innan skamms verður húsið tómt því Hampiðjuverksmiðjan er nú í Litháen. Með því að stór hluti neta- og kaðlagerðar Hampiðjunnar fer úr landi hverfa eitt hundrað störf og reyndar fækkar um 60 störf hjá fyrirtækinu í Portúgal einnig. Nefnt hefur verið að um 450 manns muni vinna í nýju álveri á Reyðarfirði þegar það verður komið í rekstur og er því þessi fækkun starfa í Reykjavík tæpur fjórðungur af því. Fyrirtækið hefur keypt verksmiðju í Litháen þar sem framleiðslan verður en þar í landi er launakostnaður aðeins brot af því sem hér er, auk þess sem allur kostnaður þar í landi er mun lægri en á Íslandi. Yfirstjórn fyrirtækisins verður áfram hér á landi en auk þess á Hampiðjan netaverkstæði um allt landi. Búið er að selja fasteignir fyrirtækisins í Reykjavík, húsnæði við Súðarvog og einnig stórhýsið við Bíldshöfða en fyrir þær fengust 730 milljónir króna. Meðal þess sem verður í húsinu við Bíldshöfða verður bílavarahlutafyrirtækið Bílanaust.
Fréttir Innlent Mest lesið Lést í slysi á Hálsasveitarvegi Innlent Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Innlent „Þetta er kannski dýrasta tækið sem barnið á“ Innlent Handtökur í vændisrannsókn lögreglu Innlent Áhöfnin hlúði að Hólmsteini á siglingunni til Hvalfjarðar Innlent Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Erlent „Virðist vera einhverskonar gamaldags sjómennskuhefndaraðgerð“ Innlent Segir Reykjavík að verða að Mekka vændisiðnaðar Innlent Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta Innlent Lögreglustjóri braut meðalhófsreglu Innlent Fleiri fréttir Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta „Ég hef verið kölluð þingmaður dauðans“ Segir Reykjavík að verða að Mekka vændisiðnaðar Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Höfuðvígi vændismansals, mótmælandi sem brotnaði niður og Þingvellir Björgunarsveitir sóttu göngumann við Háafoss Þingið komið í sumarfrí Samþykkja úrræði fyrir fólk sem sæta þarf öryggisráðstöfunum Óljós um tilganginn en þekktu hvert egg Allt eftirlit matvæla undir einni stofnun Boltinn sé hjá fjarskiptafélögunum Fresta opnun Sundhallar Reykjavíkur Áhöfnin hlúði að Hólmsteini á siglingunni til Hvalfjarðar Vetur í íslenskri kvikmyndagerð Handtökur í vændisrannsókn lögreglu Hjartaljósin ekki sloppin „Virðist vera einhverskonar gamaldags sjómennskuhefndaraðgerð“ Stór mál á dagskrá síðasta þingfundar fyrir þingfrestun Lést í slysi á Hálsasveitarvegi Hvalavinurinn í tunnunni og Kaleo undirbýr Þingvallakonsert Inga ræddi við fulltrúa Tiktok um að hækka aldursmörk Halda í opinbera heimsókn til Færeyja Dómur burðardýrs mildaður Starmer ætlar ekki að láta í minni pokann fyrir Burnham strax Einn vildi sýkna þegar dómur fyrir sérlega sársaukafulla nauðgun var staðfestur Ólafur Þ. Harðarson sakaður um fánaslugs „Þetta er kannski dýrasta tækið sem barnið á“ Tveir á slysadeild eftir eld í Jörfabakka Stefna á að ljúka þingi í dag Sjá meira