Náði naumlega inn til lendingar 13. október 2005 15:20
Flugmaður á eins hreyfils bandarískri vél, sem var að koma hingað til lands frá Grænlandi í gærkvöldi, náði naumlega inn til lendingar á Keflavíkurflugvelli eftir að hafa sent út neyðarkall þegar hann var rúmar hundrað sjómílur vestur af Keflavík. Þá var vélin að missa hæð vegna gangtruflana og var útlit fyrir að flugmaðurinn yrði að nauðlenda henni á sjónum. Þegar flugmaðurinn átti rúmar hundrað sjómílur ófarnar til Keflavíkur, og var í rösklega tuttugu þúsund feta hæð, drapst á mótornum og missti vélin í kjölfarið sautján þúsund feta hæð. En þegar hún var komin niður í 3.500 fet og útilokað var að svífa henni alla leið og nauðlending á hafinu blasti við, hrökk hreyfillinn aftur í gang og flugmaðurinn náði að hækka sig á ný upp í sex þúsund fet þar til hann hóf aðflug að velllinum. Straax og vélin drap á sér sendi flugmaðurinn út neyðarkall og hófst mikil aðgerð til að koma honum til bjargar. Tvær þyrlur frá Varnarliðinu, flugvél Flugmálastjórnar og þyrla frá Landhelgisgæslunni voru sendar af stað til móts við vélina og þyrla um borð í dönsku varðskipi í Reykjavíkurhöfn var sett í viðbragðsstöðu. Þá voru fjögur björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar send af stað og haft samband við skip og báta á væntanlegri flugleið vélarinnar. Varnarliðsþyrlurnar og flugmálastjórnarvélin fylgdu svo vélinni alveg inn til lendingar. Flugmanninum var illa brugðið en hafði náð sér í morgun og voru flugvirkjar að rannsaka vélina. Ekki er enn vitað hvað kom fyrir. Flugmaðurinn var að ferja vélina frá Bandaríkjunum til Þýskalands.
Fréttir Innlent Mest lesið Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum Innlent Hafði fé af mótsgesti Innlent Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Erlent Slysið austan við Vík var alvarlegt Innlent Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Innlent Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Innlent Sól úti um allt og hátt í sautján gráður Innlent HR útskrifaði rúmlega sjö hundruð í dag Innlent „Þetta er stórmerkilegur áfangi“ Innlent Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Innlent Fleiri fréttir Sól úti um allt og hátt í sautján gráður Hafði fé af mótsgesti HR útskrifaði rúmlega sjö hundruð í dag Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum „Þetta er stórmerkilegur áfangi“ Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Slysið austan við Vík var alvarlegt Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Aukin hætta á skriðum og grjóthruni Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Til skammar að málið hafi sofnað í meðferð þingsins Fjöldi bíður niðurstöðu og stór stund á Þingvöllum Jensína Edda er Reykvíkingur ársins Sektaður fyrir að aka á göngugötu Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Mikið tjón eftir eld á Klapparstíg Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta „Ég hef verið kölluð þingmaður dauðans“ Segir Reykjavík að verða að Mekka vændisiðnaðar Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Höfuðvígi vændismansals, mótmælandi sem brotnaði niður og Þingvellir Björgunarsveitir sóttu göngumann við Háafoss Þingið komið í sumarfrí Samþykkja úrræði fyrir fólk sem sæta þarf öryggisráðstöfunum Óljós um tilganginn en þekktu hvert egg Allt eftirlit matvæla undir einni stofnun Sjá meira