Engin þjóðarsátt í fjárlagafrumvarpi Höskuldur Kári Schram skrifar 16. desember 2013 13:25 Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ.
Gylfi Arnbjörnsson forseti Alþýðusambandsins segir að engin þjóðarsátt sé fólgin í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar. Kjaraviðræður Samtaka atvinnulífsins og Alþýðusambands Íslands sigldu í strand í byrjun desember útaf ágreiningi um hækkun lægstu launa. Nokkur verkalýðsfélög hafa vísað sinni kjaradeilu til ríkissáttasemjara sem boðaði til fundar nú í morgun. Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, segir það ráðast á næstu dögum hvort hægt verði að hefja kjaraviðræður á ný. „Það hefur verið undanfarna daga svona þreifingar á milli aðila. Menn eru að leita leiða til að komast aftur að samningaborðinu. Það er ljóst að það munaði talsvert miklu bæði hvað varðar umfang launahækkana en líka formið. Sérstaklega hvað varðar hækkun lægstu launa. Atvinnurekendur hafa verið að skoða það og eru á fundi núna með þeim samböndum og félögum sem hafa vísað deilunni til ríkissáttasemjara. Við skulum sjá til hvort að það dugi til þess að sé hægt að komast að þessu borði aftur á sameiginlegum vettvangi varðandi þennan svokallaða aðfarasamning,“ segir Gylfi. Samninganefnd Alþýðusambandsins ætlar að funda um málið í dag en Gylfi segir nauðsynlegt að stjórnvöld leggi sitt af mörkum. Enga þjóðarsátt sé hins vegar að finna í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar. „Eins og þetta er lagt fram bæði í fjárlögum og fjáraukalögum er snýr að sérstaklega desemberuppbót þeirra félaga okkar sem eru án atvinnu og reyndar er ýmiss óvissa í menntamála sem þarf að skýra betur en líka varðandi næsta ár þá er alveg af og frá að við getum kvittað upp á þetta sem einhverja þjóðarsátt,“ segir Gylfi. Vilji stjórnvöld koma til móts við kröfur launþega þurfi að breyta fjárlagafrumvarpinu. „Varðandi næsta ár þá er ljóst að það er í bígerð mjög harkalegur niðurskurður varðandi þjónustu við atvinnuleitendur. Það er ekki verið að koma til móts við okkur varðandi möguleika þeirra sem eru á vinnumarkaði með litla menntun sem ég hélt að væri samkomulag um. Þannig að það er eitt og annað eftir varðandi velferðarásýnd þessa frumvarps til að þess að það geti orðið eitthvað innlegg í þjóðarsátt,“ segir Gylfi.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Fleiri fréttir Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Sjá meira