Vinnumálastofnun stendur frammi fyrir 27% niðurskurði Stefán Árni Pálsson skrifar 16. desember 2013 16:42 Árni Stefán Jónsson formaður SFR. mynd / samsett
Vinnumálastofnun þarf að segja upp 40 starfsmönnum og draga úr rekstrarútgjöldum um 342 milljónir árið 2013 ef marka má fjárlagafrumvarp ríkistjórnarinnar sem er til umræðu á Alþingi. Fram kemur í frétt á vefsíðu SFR að þetta jafngildi um um 27% niðurskurð sem mun hafa gríðarleg áhrifa á stofnunina. „Við stöndum frammi fyrir því að yfir 40 sérhæfð störf á landsbyggðinni hverfa. Á landsvæðum með viðkvæmt atvinnulíf mundu störfin einfaldlega hverfa með ófyrirséðum afleiðingum fyrir starfsmenn, börn þeirra og fjölskyldur. Þetta eru glæsilegar áherslur eða hitt þá heldur, hjá ríkisstjórn sem hefur talað fyrir uppbyggingu atvinnulífs á landsbyggðinni,“ segir Árni Stefán Jónsson formaður SFR. „Í þessum aðgerðum og fleirum erum við að sjá áherslur stjórnvalda gagnvart þeim sem minna mega sín. Þarna sjáum við bakvið sparigrímu stjórnvalda inní steinhart andlit. Þetta er sama tilfinningalausa andlitið og við sáum þegar ákveðið var að atvinnulausir myndu ekki fá desemberuppbót nú í ár. Hér er allt á sömu bókina lært – þeir sem minna mega sín eru niðurlægðir og á þeim níðst. Stefna þessarar ríkisstjórnar miðast öll við það að gera þá ríku ríkari og rýra kost þeirra efnaminni. Þetta eru forkastanlegar áherslur og ég man ekki til þess að hafa séð svo harkalegar aðgerðir stjórnvalda lengi,“ segir Árni. „Þetta er sannarlega ekki sú stefna sem fólk taldi sig vera að kjósa í vor miðað við kosningaloforðin, heldur er hér valtað yfir almenning og það velferðarkerfi sem við þekkjum og kjósum að hafa hér á landi.“ Fram kemur í fréttinni að með þessum niðurskurði sé ekki verið að hagræða heldur sé hér um að ræða miskunnarlaust niðurrif á þeirri góðu þjónustu sem stofnunin hefur veitt atvinnuleitendum á undanförnum árum.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Innlent Fleiri fréttir Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Sjá meira