Innlent

Dálítið asnaleg lausn að frysta sæði

BBI skrifar
Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar.
Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar.
Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, gefur ekki mikið fyrir þá tillögu vísindamanns frá Bandaríkjunum að ungir menn frysti sæði sitt í ljósi nýrrar rannsóknar sem bendir til að börn miðaldra og roskinna feðra greinist frekar með einhverfu og geðsjúkdóma en börn yngri manna.

„Mér finnst það ekki spennandi lausn og að mörgu leyti dálítið asnaleg," segir Kári um þessa hugdettu en viðurkennir að ef menn séu „alveg yfir sig að skíta í buxurnar af hræðslu" yfir niðurstöðunum sé þetta vissulega eitt af því sem þeir geti gert til að láta sér líða betur.

Niðurstöður rannsóknarinnar, sem Íslensk erfðagreining stóð að, hafa vakið mikla athygli um heim allan. Rannsóknin bendir til þess að stökkbreytingar í erfðaefni afkvæma aukist eftir því sem feðurnir eru eldri. Þannig eru tvisvar sinnum meiri líkur á að börn fertugs karlmanns greinist með einhverfu eða geðklofa en börn tvítugs karlmanns.

„En það má ekki gleyma því að þó við höfum núna lýst þessu og sýnt fram á að þetta sé svona þá hefur þetta verið svona gegnum aldirnar. Það hefur ekkert breyst þó við sjáum þetta núna. Það sem vinnst með þessu er að nú er hægt að setja þetta inn í jöfnuna," segir Kári.

Hann segir að það séu öfgakennd viðbrögð að ætla að frysta sæðið sitt. „En það verður alltaf til fólk sem fer út í öfgarnar" segir hann. Vísindamaðurinn sem fékk þessa hugdettu umsvifalaust þegar hann kynnti sér niðurstöður rannsóknarinnar er gamall þróunarfræðingur sem hefur lengi velt þessum möguleika fyrir sér, að sögn Kára. „Og hann var voðalega spenntur að sjá að nú er búið að sýna fram á þetta."


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×