Nýársspá Siggu Kling – Ljónið: Fyrstu mánuðir ársins bjóða upp á ástina Sigga Kling skrifar 4. janúar 2019 09:00
Elsku hjartans besta Ljónið mitt, eins og þú hefur dásamlega útgeislun sem svo inniilega hjálpar öðrum til að slaka á og allir halda þú sért kóngur eða drottning, líta upp til þín og hreinlega dá þig detturðu samt svo oft í þá gryfju að enginn elski þig og þér finnst þú vera að hrapa. Það er lykilatriði þú gerir þér fulla grein fyrir þessu og vinnir þig út úr þessari tilfinningu með eins miklum krafti og þú værir að ljúka við mastersverkefni þitt við háskólann. Þú býrð nefnilega yfir þeirri náðargáfu að leysa vandamál annarra og þú veist alveg 1000 % hvað þú þarft að gera til að halda þér á hamingubrautinni, en þetta er vinna sem þú þarft að vera meðvitað um. Árið 2019 færir þér tvo ása sem gefur þér svo mikinn stíganda að ég get hreinlega sagt að þú færð vængi, hversu tignarlegt er það að sjá Ljón fljúga? Þú sérð strax í janúar að þar er dulbúin heppni, meiri veraldleg gæði eða peningar svo þú verður undrandi! Skoðaðu hversu góð tilfinning það er að verða jákvætt hissa, stimplaðu það inn í frumurnar þínar þegar sú upplifun kemur til þín. Fyrstu mánuðir ársins bjóða upp á ástina, sérstaklega í febrúar sem er frjósemismánuður mikill, magnaðar hugmyndir, meiri líkur á getnaði og ástin springur út eins og lítið blóm óvænt í eyðimörkinni. Heillandi fólk kemur inn í líf þitt þessa fyrstu mánuði ársins og heppnin verður með þér, tengt nýjum vinum sem munu hjálpa þér að ná flugi. Það er svo vissulega hægt að segja þú sért happafengur í ástum, bæði ertu trygglynd og trú manneskja fram í rauðan dauðann, en líka tilbúinn að fyrirgefa ef með þarf. Apríl, maí og júní koma þér rosalega á óvart því þá ertu virkilega að sjá að þér sé að takast að láta þér líða vel og vera svo einlæglega hamingjusöm persóna. Sumarið 2019 verður það besta sem þú hefur upplifað í mörg ár því júní, júlí og ágúst sýna þér hvað þú lítur frábærlega vel út og verður í þínu allra besta formi og þá líður þér svo vel. Þetta verður sannkallað ástarsumar og í öllum regnbogans litum og eftir því sem þú þráir ástina meira, því meira færðu af henni til þín, en vertu alveg viss um hvað þú vilt að ástin gefi þér, segðu það skýrt því hún getur líka dregið mann niður alveg eins og hún getur híft mann upp. Seinnipart sumars og byrjun hausts, færa þér draumastaðsetninguna þína, hvar þú búa eða hvar í lífinu þú vilt vera. Talan 11 eða þeir tveir ásar sem umlykja þig þetta árið gefa þér forskot á svo marga og í svo mörgu og það er hreinlega eins og þú fáir ekki nei sem svar ef þú ætlar þér að stíga skrefinu lengra í lífinu, svo vertu viðbúinn jáinu og glamúr og glæsileiki mun umleika hvert þitt spor.Fræg Ljón: Cara Delevingne fyrirsæta, Ágústa Eva Erlendsdóttir, leik- og söngkona, Halldóra Geirharðsdóttir leikkona, Birgitta Haukdal söngkona, Barack Obama Bandaríkjaforseti, Ásdís Rán fyrirsæta, Gísli Gíslason geimfari, Geir Ólafsson söngvari, Þórunn Antonía alheimsstjarna, Albert Eiríks, matgæðingur af bestu sort, Jón Óttar Ragnarsson, athafna- og fjölmiðlamaður, Jennifer Lopez söngkona, Diddú, Sirrý Arnardóttir fjölmiðlakona, Arnór Dan, söngvari, Agent Fresco, Ana Mafalda, besta húshjálp í heimi, Sema Erla Serdar, baráttukona, Rósa Ingólfsdóttir, sjónvarpskona, Anton Máni Svansson, kvikmyndaframleiðandi, Hulk
Stjörnuspá Siggu Kling Mest lesið Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið „Það er smá töffari í mér“ Tíska og hönnun Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Bíó og sjónvarp Fangelsi undir Vatnajökli Leikjavísir Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Lífið Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Lífið Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Menning Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Lífið Húsgagnadagar hafnir í JYSK með allt að 40% afslætti Lífið samstarf Eva Marie Saint er látin Lífið Fleiri fréttir Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París Sjá meira