Eigandi hússins á Dalvík telur McAfee vera að afvegaleiða fólk Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 9. september 2019 14:05 Gestir á fallegum degi á veitingastaðnum Gregor's á Dalvík Gregor's
Eigandi hússins á Dalvík þar sem velt er upp hvort eftirlýstur tæknifrumkvöðull hafi dvalið í felum segir það hreinlega ekki geta verið. Hún veltir því fyrir sér hvort verið sé að villa um fyrir þeim sem vilja hafa hendur í hári Bandaríkjamannsins. Það vakti athygli fyrir helgi þegar John McAfee, stofnandi vírusvarnarforrits sem kennt er við hann, greindi frá því á Twitter að komið hefði verið upp um dvalarstað hans. McAfee nefndi veitingastaðinn Gregor's í færslu á samfélagsmiðlinum en samnefnt veitingahús er rekið á Dalvík. Friðrika Árnadóttir telur ómögulegt annað en að íbúar í húsinu hefðu orðið varir við John McAfee hefði hann falið sig í risi hússins. Milljarðamæringur á flótta Tæknifrumkvöðullinn John McAfee, sem er hvað þekktastur fyrir að hafa stofnað McAfee vírusvarnarfyrirtækið, hefur verið á flótta frá 2012 þegar hann var sakaður um að hafa skotið nágranna sinn í Belís til bana. Hann er einnig sakaður um umfangsmikil skattsvik í Bandaríkjunum. McAfee hvarf af sjónarsviðinu í sumar eftir að hann var handtekinn í Dóminíska lýðveldinu. Þá var hann ásamt öðrum á ferð í snekkju og fundust þar um borð skotvopn, skotfæri og „hergögn“. Eftir að honum var sleppt sagði McAfee á Twitter að hann ætlaði sér að fara huldu höfði um tíma og sagðist hann vera í Litháen. Nú á dögunum kom þó í ljós að McAfee hafi þurft að flytja á nýjan leik og sagði hann á Twitter að það væri vegna þess komið hafi verið upp um felustað hans og eiginkonu hans. We have been outed. You cannot blame Adam. It would have happened eventually. The slip up was mine - mentioning Gregor's Eatery. I, in fact, commend Adam for his intelligence and insightful work. If I had money, I would hire you Adam. We are on the road again. https://t.co/zvzMj5RyiH— John McAfee (@officialmcafee) August 28, 2019 Áhugasöm um McAfee Friðrika Árnadóttir er eigandi húss á Dalvík sem hýsir bæði veitingastaðinn Gregors og íbúð þar sem talið var að McAfee dveldi. Sú heimild um að hann hafi dvalið í húsinu verður seint talin traust. Twitter-notandinn Adam Guerbuez birtir mynd af húsinu á Twitter þar sem ör er beint að glugga á efstu hæð hússins. McAfee grípur boltann á lofti og segir að upp sé komið um dvalarstað hans. Friðrika hafði kynnt sér málið nokkuð vel þegar blaðamaður heyrði í henni hljóðið í dag. Sýndi hún McAfee mikinn áhuga og tjáði blaðamanni að heimildarmynd hefði verið gerð um kappann sem hún ætlaði sér sannarlega að sjá. Hins vegar væri nær útilokað að hann hefði dvalið í hennar húsakynnum. Ekki séns „Þetta er rosalega skrýtið, ég skil þetta ekki alveg. Það er ekki séns að hann hafi verið á Goðabrautinni,“ segir Friðrika sem er sjálf búsett í Danmörku. Veitingastaðurinn Gregors er á neðstu hæðinni. Þar fyrir ofan tvær íbúðir sem hún leigi út í langtímaleigu. Á efstu hæðinni sé rými með alls kyns dóti og drasli. Ekkert rúm eða neitt svoleiðis. „Hann myndi aldrei geta hafa komist niður án þess að rekast á fólk,“ segir Friðrika. Sameiginlegur inngangur sé í rýmin í risinu og hjá fólkinu á efri hæðinni. Hún hafi líkt og blaðamaður fyrir helgi rætt við Gregorz, sem reki veitingastaðinn á jarðhæðinni, og hann kannist heldur ekki við neitt. .@theemrsmcafee and I have moved. We moved because some a*hole publicly outed our location. Janice and I have settled in to a new safe house in a new country. Weather still sucks but at least our Comm room is fully mobile and will arrive soon. We will miss Gregor's.— John McAfee (@officialmcafee) August 28, 2019 Líkur á að McAfee sé að plata Friðrika veltir því upp sem margir velta eflaust fyrir sér. Hvort McAfee hafi nokkuð verið á Íslandi og hvað þá í þessari íbúð. Hvort hann sé ekki bara að villa fyrir þeim sem vilji ná í skottið á honum. „Getur ekki verið að hann sé að blöffa? Afvegaleiða þá sem eru að leita að honum?“ spyr Friðrika. Eðlileg vangavelta. „Hann er í felum en segir að hann sakni Gregorz. Það er engin lógík í þessu.“ Hún skilji þó vel að matnum hjá Gregorz sé hrósað enda fyrsta flokks. Ekki hafa komið fram neinar upplýsingar, utan þeirra sem tengjast McAfee sjálfum á Twitter, að hann hafi verið hér á landi.
Dalvíkurbyggð Tengdar fréttir John McAfee virðist hafa falið sig á Dalvík Tæknifrumkvöðullinn John McAfee hefur verið á flótta frá 2012. 6. september 2019 07:48 Man vel eftir McAfee en þó ekki John Gregorz Tomasz Maniakowski vaknaði við símtal í morgun og spurður út í fregnir af milljarðarmæringnum John McAfee sem virðist hafa farið huldu höfði á Dalvík í sumar. 6. september 2019 10:55 Mest lesið „Þetta er mikið áfall fyrir okkur fjölskylduna“ Innlent Kourani gæti losnað eftir þrjá mánuði eftir lagabreytingu Innlent Ari missti af fyrsta fundinum Innlent Fleiri bitnir af hundunum Innlent Steinsofandi þegar drunurnar riðu yfir: „Er þetta kjarnorkusprengja?“ Erlent Nýtt og mikið golfsvæði í Hafnarfirði komið á veg Innlent Fasteignamat lækkar að raunvirði Innlent Áttu ekki von á að þurfa að fara með málið fyrir dóm Innlent Sex úr sömu fjölskyldu skotnir til bana Erlent Faldi rúmar þrjátíu milljónir í peningaskáp Innlent Fleiri fréttir Unnur Brá sveitarstjóri í Borgarbyggð og Skorradalshreppi Beri skylda að skila Dananum hugsanlega á Þingvöllum Tímamót í borginni, innbrot í kjúklingabú og forritari á barnsaldri „Ávirðingarnar sem þetta fólk lét út úr sér eru því sjálfu til skammar“ Sumaráætlun Herjólfs frestað Leit að eftirmanni Höllu Bergþóru hafin Fær annan skóla undir sinn væng Faldi rúmar þrjátíu milljónir í peningaskáp Skjálftahrinan mallar enn Ari missti af fyrsta fundinum Kourani gæti losnað eftir þrjá mánuði eftir lagabreytingu Situr rúma viku á þingi fyrir sumarfrí „Heiður lífs míns að vera borgarstjóri“ Fordæma innbrot í Reykjabú Mun örugglega leita ráða hjá Heiðu „Greiddi smyglurum verulegar upphæðir til að komast á leiðarenda“ Ljósið fékk langtímasamning Ætlar ekki í varaformannsframboð Verði hægt að sækja um skilnað án þess að gefa upp ástæðu Yfir 70 þúsund horfðu á kappræðurnar á Sýn Áttu ekki von á að þurfa að fara með málið fyrir dóm Bein útsending: Lyklaskipti í borginni Horfði á gamla fundi til að undirbúa sig „Góður dagur fyrir nýja tíma í Reykjavík“ Fyrsti fundur borgarstjórnar, ný rannsóknarnefnd og bein Jónasar Rannsóknarnefnd mun skoða aðstæður barna á einkaheimilum Furðar sig á því að þeir sem vildu minnka báknið fjölgi ráðum Fasteignamat lækkar að raunvirði „Þetta er mikið áfall fyrir okkur fjölskylduna“ Nýtt og mikið golfsvæði í Hafnarfirði komið á veg Sjá meira
John McAfee virðist hafa falið sig á Dalvík Tæknifrumkvöðullinn John McAfee hefur verið á flótta frá 2012. 6. september 2019 07:48
Man vel eftir McAfee en þó ekki John Gregorz Tomasz Maniakowski vaknaði við símtal í morgun og spurður út í fregnir af milljarðarmæringnum John McAfee sem virðist hafa farið huldu höfði á Dalvík í sumar. 6. september 2019 10:55