Mannréttindasamtök vara við því að sókn Tyrkja muni þó skapa enn verra ástand í Sýrlandi og reka fleira fólk á flótta.
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, sagði í dag að innrás Tyrkja væri „slæm hugmynd“ og sagðist hann ekki styðja hana. Þrátt fyrir það halda yfirvöld Tyrklands því fram að Trump hafi verið gert grein fyrir aðgerðum Tyrkja og þar að auki skipaði Trump fyrir að bandarískir hermenn myndu hörfa frá landamærunum til að greiða leið Tyrkja.
Innrás Tyrkja kemur eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti skyndilega á mánudag að hann ætlaði að draga lið bandaríska hersins frá norðanverðu Sýrlandi fyrir yfirvofandi aðgerðir Tyrklands. Bandaríkjaher hefur unnið náið með Kúrdum í baráttunni gegn Ríki íslams.
Þúsundir Kúrda hafa fallið í átökum við hryðjuverkasamtökin og þeir reka jafnvel fangelsi þar sem þúsundum vígamanna Íslamska ríkisins er haldið. Vestræn yfirvöld óttast hvað verði um þá fanga nú þegar Kúrdar verjast innrás Tyrkja.
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, virðist hafa litlar áhyggjur af því að ISIS-liðar sleppi úr haldi sýrlenskra Kúrda. Því þeir muni flýja til Evrópu. Þetta sagði hann á blaðamannafundi í kvöld og gaf hann í skyn að Evrópa ætti það skilið.
Sjá einnig: Mennirnir sem enginn vill fá heim
Trump indicates he's not worried about ISIS fighters escaping northern Syria because if they do they'll just end up in Europe pic.twitter.com/cBsbXQxjsg
— Aaron Rupar (@atrupar) October 9, 2019
Á blaðamannafundinum í kvöld gaf Trump í skyn að Bandaríkin skulduðu Kúrdum ekki neitt. Þeir væru að berjast fyrir eigin land og þar að auki hefðu Kúrdar ekki hjálpað Bandaríkjunum í seinni heimsstyrjöldinni. Auk þess hefðu Bandaríkin varið miklum peningum í SDF. Hann tók þó fram að „okkur líkar við Kúrda“.
Forsetinn hefur einnig hótað því að rústa efnahag Tyrklands gangi innrásin of langt að hans mati. Svo virðist þó sem að þingmenn séu að grípa til eigin aðgerða gegn Tyrklandi.
Lindsey Graham, einn af helstu bandamönnum Trump í öldungadeild Bandaríkjaþings, hefur samið frumvarp með þingmanni Demókrataflokksins sem snýr að því að beita Tyrki umfangsmiklum viðskiptaþvingunum og refsiaðgerðum.
Graham sagði frá frumvarpi sínu á Twitter í kvöld og sagði að þar sem ríkisstjórn Trump neiti að bregðast við gegn Tyrkjum, byggist hann við miklum stuðningi frá þingmönnum beggja flokka.
Frumvarp Graham felur í sér viðskiptaþvinganir gegn mörgum meðlimum ríkisstjórnar Recep Tayyip Erdogan, forseta Tyrklands, og bann við allri sölu vopna og varahluta til Tyrklands. Sömuleiðis felur frumvarpið í sér að öllum sem eigi í viðskiptum við orkugeira Tyrklands verði refsað.
I am pleased to have reached a bipartisan agreement with Senator @ChrisVanHollen on severe sanctions against Turkey for their invasion of Syria.
While the Administration refuses to act against Turkey, I expect strong bipartisan support. pic.twitter.com/Ph5fIVt7k3
— Lindsey Graham (@LindseyGrahamSC) October 9, 2019
Sýrlenski lýðræðisherinn (SDF), sem er að mestu skipaður af sýrlenskum Kúrdum (YPG), segir minnst fimm almenna borgara hafa fallið í árásum Tyrkja.
Þá óttast Tyrkir að velgengni sýrlenskra Kúrda og hugsanlegt sjálfstæði þeirra myndi leiða til aukinna átaka innan Tyrklands.
Þetta er ekki fyrsta innrás Tyrkja í Sýrland. Fyrst gerðu þeir innrás í norðurhluta landsins, vestur af Efrat, til að koma í veg fyrir að Kúrdar næðu að tengja yfirráðasvæði sitt við Afrin-hérað. Seinna meir gerðu þeir einnig innrás í Afrin og ráku Kúrda þaðan og fluttu uppreisnarmenn og vígamenn sem þeir hafa stutt inn í héraðið.