Viðskipti innlent

Sam­drátturinn á í­búða­markaði minni en áður var talið

Atli Ísleifsson skrifar
Hrein ný íbúðalán til heimila námu alls um 22,2 milljörðum króna í október síðastliðnum og mældust 36% hærri en í september og 44% hærri en í október í fyrra.
Hrein ný íbúðalán til heimila námu alls um 22,2 milljörðum króna í október síðastliðnum og mældust 36% hærri en í september og 44% hærri en í október í fyrra. vísir/vilhelm

Kaupsamningum um stakar eignir á höfuðborgarsvæðinu hefur fækkað á fyrstu tíu mánuðum ársins miðað við sama tíma í fyrra. Ný gögn gefa hins vegar til kynna að samdrátturinn sé minni en áður var talið.

Þetta kemur fram í nýrri mánaðarskýrslu Íbúðalánasjóðs. Þar segir að veltan á bakvið þau viðskipti á íbúðamarkaði það sem af er ári sé komin á par við sama tímabil í fyrra að nafnvirði á landinu öllu. Samdrátturinn sé eitt prósent á höfuðborgarsvæðinu en aukning hafi verið um eitt prósent í nágrannasveitarfélögum og á Akureyri.

Í tilkynningu frá Íbúðalánasjóði segir að fasteignamarkaðurinn virðist því vera heldur líflegri í haust heldur en í lok sumars miðað við sama tímabil í fyrra.

„Íbúum hefur fjölgað langmest á Suðurnesjum frá árinu 2008 eða um rúmlega 30%. Fjölgun íbúða hefur einnig hvergi verið meiri á sama tíma eða um 10% sem er þó ekki nóg til þess að halda í við íbúafjölgun.

Flatari dreifing í leigufjárhæðum

Leigufjárhæð hefur verið að jafnaði um 182 þúsund kr. á mánuði sé miðað við miðgildi þinglýstra samninga það sem af er ári. Í níu af hverjum tíu þinglýstum leigusamningum á höfuðborgarsvæðinu liggur leigufjárhæð á bilinu 99.000 – 277.000 krónur á mánuði en til samanburðar var sambærilegt bil 94.000 – 284.000 árið 2018 og 72.000 – 216.000 kr. árið 2013 á föstu verðlagi.

Októbermánuður stærsti einstaki mánuður frá upphafi í hreinum nýjum íbúðalánum heimilanna

Hrein ný íbúðalán til heimila námu alls um 22,2 milljörðum króna í október síðastliðnum og mældust 36% hærri en í september og 44% hærri en í október í fyrra. Frá sama tímabili í fyrra hafa heildarfjárhæðir nýrra íbúðalána heimilanna, að frádregnum umfram- og uppgreiðslum eldri lána, aukist um 1,3% að nafnvirði.

Samsetning lána hefur tekið stakkaskiptum því óverðtryggð lánhafa vaxið um nær 30% á milli ára en á móti vegur að hrein ný verðtryggð lán drógust saman um 37% á verðlagi hvors árs. Þá virðist hlutdeild lífeyrissjóða á íbúðalánamarkaði hafa aukist lítillega.

Útlánavöxtinn í októbermánuði má að mestu leyti rekja til mikillar aukningar í hreinum nýjum óverðtryggðum útlánum lífeyrissjóðanna. Ástæður  þeirrar  aukningar er þó ekki hægt að rekja beint til aukinnar aðsóknar til nýrra lána lífeyrissjóðanna í októbermánuði einum og sér heldur þess að eitthvað hefur verið um að lífeyrissjóðir hafi gert átak í því að hreinsa upp í þeim umsóknarstöflum sem myndast höfðu frá því í sumar/haust. Því er hér fyrst og fremst um að ræða einskiptisaðgerðir ákveðinna stórra lífeyrissjóða en ekki stökkbreytingar í umsóknum nýrra lána,“ segir í tilkynningunni frá Íbúðalánasjóði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×