Lífið

Víkingur með stjörnunum í Dúbaí

Stefán Árni Pálsson skrifar
Víkingur hitti sjálfan Lil Pump og má sjá þá félagana saman hér til vinstri. Niðri til hægri er Víkingur meðal annars með Vitaly Zdorovetski og Sultan Khoory. Uppi til hægri má sjá mynd af Instagramreikningi Vitaly en hann er með 3,1 milljón fylgjenda þar.
Víkingur hitti sjálfan Lil Pump og má sjá þá félagana saman hér til vinstri. Niðri til hægri er Víkingur meðal annars með Vitaly Zdorovetski og Sultan Khoory. Uppi til hægri má sjá mynd af Instagramreikningi Vitaly en hann er með 3,1 milljón fylgjenda þar.

„Þetta var vinnuferð í bland við skemmtiferð en vinur minn Daníel Örn Einarsson skellti sér með mér,“ segir Víkingur Heiðar Arnórsson, framkvæmdastjóri tónlistahátíðarinnar Secret Solstice, sem er nýkominn heim úr svakalegri skemmtiferð í Dúbaí þar sem hann skemmti sér konunglega.

„Við ákváðum að kíkja og hitta þá sem stjórna tónlistarsenunni þarna úti til að sjá hvort við getum unnið saman fyrir Secret Solstice 2020, svo er ég líka að skoða úrvalið hérna úti í innbú fyrir húsið mitt sem ég flyt inn í fyrir sumarið. Húsið mitt brann fyrir nokkrum árum, en nú fer það loksins að verða tilbúið,“ segir Víkingur.

„Ég á góðan vin hérna sem heitir Sultan Khoory og er með sterka tengingu við Sheikinn í Dúbaí. Hann stjanar alltaf við okkur þegar við kíkjum á hann og hefur hann kynnt okkur fyrir öllum hérna úti. Hann þekkir allt rétta fólkið þannig manni er yfirleitt boðið í öll skemmtilegustu partýin.“

Hér að neðan má sjá mynd af Víkingi og hópnum úti í Dúbaí en lengst til vinstri er Khoory. Við hliðiná honum er síðan Vitaly Zdorovetski sem er heimsþekktur prakkari og er hann bannaður á hverjum einasta íþróttaleikvangi í heiminum, og þá sérstaklega á úrslitaleikjum.

„Helsta ástæðan fyrir því að við ákváðum að skella okkur út á þessum árstíma var að Formúla 1 mót var haldið um mánaðarmótin síðustu og hef ég aldrei áður farið á slíkan viðburð. Það var svo heppilegt að góður vinur minn frá Rússlandi, Vitaly og konan hans Kinsey sem hljóp inn á lokaleik meistaradeildarinnar í fyrra voru öll á leiðinni á Formúluna líka. Til gamans má geta að allur sami hópurinn var með okkur 2018 á Secret Solstice þar sem þau eru vinir Steve Aoki og var ég að sjá um hann og aðrar stjörnur sem voru að spila á hátíðinni áður en ég tók yfir sem framkvæmdarstjóri.“

Hér að neðan má sjá mynd af Vitali að njóta lífsins í Dúbaí.

 
 
 
View this post on Instagram

Thank You Sugar Daddy For The Vacation!

A post shared by Vitaly (@kingvitaly) on Nov 28, 2019 at 1:58pm PST

„Lífið þarna úti er heldur betur ljúft og veðrið er alltaf svo gott og jafnvel of heitt. Uppbyggingin er svakaleg hérna. Þegar nýtt verkefni er sett í gang, þá er tvöföld eða þreföld vakt af verkamönnum að vinna og er byggt dag og nótt til að tryggja að byggingar rísi sem hraðast. Um tíma voru 30% af öllum byggingarkrönum í heiminum í Dubai er mér sagt,“ segir Víkingur og bætir við að allir séu mjög vinalegur þarna úti.

„Það vilja allir bjóða í mat eða borga allt undir gestina sína. Það er alltaf pantaður matur fyrir auka gesti til öryggis ef einhver dettur við í heimsókn. Maður er alltaf í erfiðleikum með að fá að borga fyrir sjálfan sig. Maturinn er rosalega góður, alveg jafn góður og íslenskur matur nema úrvalið er svo miklu meira og verðið eru yfirleitt mjög sanngjarnt. Einnig er gott úrval af verslunum, og öll sú afþreying sem þér gæti dottið í hug. Það er alltaf eitthvað um að vera eins og tónleikar, ráðstefnur, hátíðir og aðrir viðburðir. Nokkrir sem ég þekki eiga einkadýragarð.“

Vilja slá heimsmet í öllu

Víkingur fann sig einstaklega vel út í Dúbaí.

„Dúbaí er að reyna að setja heimsmet í öllu sem þeir geta. Þeir eru nú þegar með stærstu verslunarmiðstöð í heimi, hæstu bygginguna og eru að byggja eina enn stærri, stærsta fiskabúr heims, stærsta flatskjáinn, stærsti myndarammi og alveg helling í viðbót.  Það eru bara til rúmlega ein milljón af heimamönnum en svo eru mikið af vinnumönnum frá Asíu og innflytjendum frá Evrópu ásamt ferðamönnum. Margir heimamenn eiga snekkjur, ofurbíla og risa villur. Þetta var ótrúlegt.“

Víkingur hitti sjálfan Lil Pump á ferðalagi sínu en hann kemur fram á Secret Solstice næsta sumar.

„Ég var í sambandi við starfsfólk Lil Pump og sagði þeim frá því að ég væri í Dúbaí. Þau vildu endilega að við myndum hittast. Ég hitti hann á 1’Oak skemmtistaðnum og var ég með honum og hans föruneyti baksviðs fyrir og eftir giggið. Eftir ágætis spjall við Lil Pump og umboðsmanninn hans kom í ljós að hann hefur sjaldan eða aldrei verið jafn spenntur fyrir tónleikum eins og að spila fyrir okkur Íslendinga. Aðrir sem voru með okkur baksviðs voru rapparinn Dave East, einhverjir minna þekktir meðlimir úr Wu-Tang og fyrrum NBA kappi sem er núna að spila í Dúbaí. Ég hitti einnig Sia, sem er stærsti aðilinn í að flytja inn tónlistarmenn til Dúbaí, og hann mundu eftir mér síðan hann kom með Fatman Scoop til Íslands og spiluðu þeir í afmælinu mínu á Broadway fyrir 14 árum síðan.“  

Víkingur segir að von sé á tilkynningu frá Secret Solstive í upphafi næsta árs.

„Fyrsta tilkynningin kom út fyrir nokkrum vikum síðan og eru flest allir í skýjunum með dagskrána nú þegar. Við erum á fullu að vinna í að fá fleiri tónlistarmenn og erfitt að staðhæfa að svo stöddu hvenær næsta tilkynning kemur út, en ég býst við að það verði í lok janúar eða byrjun febrúar. Það eiga eftir að bætast við nokkrir af vinsælustu tónlistarmönnum landsins ásamt einhverjum vinsælum erlendum listamönnum.“

Hér að neðan má sjá myndband sem Víkingur klippti saman eftir ferðina til Dúbaí. Hann stendur fyrir Secret Solstice næsta sumar og verður tónlistarhátíðin 26. - 28. júní í Laugardalnum.

Klippa: Víkingur á ferðlagi lífs síns í Dúbaí

Tengdar fréttir

Cypress Hill og TLC á Secret Solstice

Forsvarsmenn tónlistahátíðarinnar Secret Solstice birtu í dag fyrstu tilkynninguna um þá listamenn sem koma fram á hátíðinni næsta sumar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×