Viðskipti innlent

Sendingum fjölgað um 140 prósent í kjölfar stóru, erlendu verslunardaganna

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Dagarnir sem um ræðir eru hinir svokölluðu svarti föstudagur (e. black friday), netmánudagur (cyber monday) og dagur einhleypra (e. singles day).
Dagarnir sem um ræðir eru hinir svokölluðu svarti föstudagur (e. black friday), netmánudagur (cyber monday) og dagur einhleypra (e. singles day). Vísir/vilhelm
Fjöldi innlendra sendinga, sem koma til Íslandspósts í kjölfar hinna stóru netverslunardaga sem hafa fest sig í sessi hér á landi síðustu ár, hefur aukist um 140 prósent frá því árinu 2015. Þá varð 43 prósent aukning í sendingunum á milli ára. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íslandspósti.

Dagarnir sem um ræðir eru hinir svokölluðu svarti föstudagur (e. black friday), netmánudagur (cyber monday) og dagur einhleypra (e. singles day). Í tilkynningu segir að fjöldi netverslana sem bjóði afsláttarkjör á þessum dögum sé sífellt að fjölga. Búast megi við áframhaldandi þróun í þessa átt á komandi árum.

„Íslendingar eru að versla meira á netinu og innlend netverslun er sífellt að verða stærri þáttur í verslun landsmanna,“ segir í tilkynningu.

Neytendur fagna eflaust margir þeim tilboðum sem verslanir bjóða upp á áðurnefnda daga. Aðrir hafa þó sett þessa miklu neysludaga, sem byggja á því að neytendur kaupi sem mest, í samhengi við umhverfismál.

Þannig hefur verið bent á að neysluvenjur nútímans stuðli að loftslagsbreytingum – meiri neysla hefur enda í för með sér stærra kolefnisfótspor. Sumar verslanir hafa í ljósi þessa tilkynnt sérstaklega um að þær taki ekki þátt í svörtum föstudegi og öðrum afsláttardögum.


Tengdar fréttir

Verslunin sem hafnar svörtum föstudegi

Eigendur verslunarinnar Vistveru við Bústaðaveg ætla ekki að taka þátt í hinum svokallaða "svarta föstudegi“, þvert á þá þróun sem virðist hafa orðið meðal verslana á íslenskum markaði.

Hækka verð til að lækka það á svörtum föstudegi

Neytendasamtökunum hafa borist ábendingar um að smávöruverslanir hækki verðið í aðdraganda svarts föstudags, eða Black Friday. Ólíkt því sem gerðist í fyrra hafa lánafyrirtæki í auknum mæli auglýst í tilefni dagsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×