Viðskipti innlent

Lyfja kaupir Ár­bæjarapó­tek

Atli Ísleifsson skrifar
Eftir kaupin rekur Lyfja 46 apótek og útibú víða um land.
Eftir kaupin rekur Lyfja 46 apótek og útibú víða um land. Lyfja
Lyfja hefur náð samkomulagi við Árbæjarapótek um kaup á rekstri apóteksins.

Þetta kemur fram í tilkynningu og eru kaupin sögð gerð með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins. Árbæjarapótek hefur starfað frá árinu 1971. 

Haft er eftir Kristjáni Steingrímssyni lyfsala í Árbæjarapóteki að þetta séu tímamót fyrir sig. „Ég á eftir að sakna þess góða starfsfólks sem verður áfram hjá apótekinu sem og okkar viðskiptavina.“ 

Lyfja hóf starfsemi sína með opnun Lyfju í Lágmúla árið 1996. Eftir kaupin rekur Lyfja 46 apótek og útibú víða um land með tæplega 400 starfsmenn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×