Ríkisstjórn kynnir aðgerðir vegna Samherjamálsins: Verjast mútum, hagsmunaárekstrum og auka gagnsæi stærri fyrirtækja Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 19. nóvember 2019 12:02 Bernhardt Esau, sem nýlega hætti sem sjávarútvegsráðherra Namibíu, og Þorsteinn Már Baldvinsson, fyrrverandi forstjóri Samherja, saman á fundi árið 2015. Mynd/WikiLeaks
Ríkisstjórnin ákvað á vikulegum fundi sínum í morgun að grípa til aðgerða í því skyni að auka traust á íslensku atvinnulífi. Um er að ræða viðbrögð í kjölfar Samherjamálsins. Fundurinn hófst klukkan 9:30 og stendur enn yfir þegar þetta er skrifað. Er óhætt að segja að fundurinn sé í lengra lagi þegar horft er til vikulegra funda ríkisstjórnarinnar. Meðal þess sem til stendur að gera er að auka gagnsæi í rekstri stærri óskráðra fyrirtækja, stórra sjávarútvegsfyrirtækja, stuðla að úttekt og úrbótum á fiskveiðum á alþjóðavettvangi og ljúka endurskoðun á skilgreiningu á tengdum aðilum fyrir áramót. Þá stendur til að tryggja viðbótarfjárveitingar til skattrannsókna, auka varnir gegn hagsmunaárekstrum og mútubrotum auk þess sem utanríkisráðuneytið fylgist með umfjöllun erlendis í kjölfar Samherjamálsinsog hefur undirbúið viðbrögð vegna hugsanlegs orðsporhnekkis. Aðgerðir ríkisstjórnarinnar til að auka traust á íslensku atvinnulífi má sjá hér að neðan.Forseti Íslands segir í pistli í dag sögum fara af stórrisum, sem hösluðu sér völl á nýjum stað og fóru offari, léku innfædda grátt, með blekkingum, svikum og mútum.Vísir1. Auka gagnsæi í rekstri stærri óskráðra fyrirtækja Undirbúningur er hafinn að lagafrumvarpi um ríkari upplýsingaskyldu hlutfallslega stórra fyrirtækja sem geta haft kerfislæg áhrif í íslensku efnahagslífi. Til skoðunar er að gera ríkari kröfur til slíkra fyrirtækja um upplýsingar um rekstur, efnahag og góða stjórnarhætti. Meðal annars er höfð hliðsjón af kröfum sem gerðar eru til fyrirtækja sem skráð eru í kauphöll. Er þetta gert til að auka gagnsæi um starfsemi þessara fyrirtækja og tryggja betur heilindi og orðspor íslensk atvinnulífs. Þá er þetta í samræmi við nýlega ráðgjöf Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, AGS. Þessi vinna er til viðbótar við fyrirhugað frumvarp á þingmálaskrá ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra um breytingar á lögum um ársreikninga til að tryggja gagnsæi í upplýsingagjöf í reikningsskilum stórra óskráðra fyrirtækja í samræmi við tilskipun ESB.2. Auka gagnsæi í rekstri stórra sjávarútvegsfyrirtækja Þær kröfur um aukið gagnsæi sem koma fram í 1. tölulið munu ná til fyrirtækja í öllum atvinnurekstri. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur óskað eftir því að við þessa vinnu verði tekið til sérstakrar skoðunar hvort gera þurfi enn ríkari kröfur um gagnsæi til stærri sjávarútvegsfyrirtækja.Björgólfur Jóhannsson (til vinstri), nýskipaður forstjóri Samherja, og Þorsteinn Már Baldvinsson, fráfarandi forstjóri.Vísir/Sigurjón3. Stuðla að úttekt og úrbótum á fiskveiðum á alþjóðavettvangi Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra mun hafa frumkvæði að því að Alþjóðamatvælastofnunun (FAO) vinni úttekt á viðskiptaháttum útgerða sem stunda veiðar og eiga í viðskiptum með aflaheimildir þ. á m. í þróunarlöndum. Á grundvelli úttektarinnar vinni FAO tillögur til úrbóta í samvinnu við aðrar alþjóðlegar stofnanir sem vinna að heilbrigðum viðskiptaháttum, gegn spillingu, mútum og peningaþvætti. FAO er stærsta alþjóðlega stofnunin sem sinnir reglubundnu starfi hvað varðar aðgerðir til að bæta stjórn fiskveiða og þróun sjávarútvegs á heimsvísu. Á vettvangi stofnunarinnar hafa verið gerðir alþjóðasamningar m.a. til að takast á við ólöglegar veiðar og bæta stjórn og upplýsingagjöf með fiskveiðum. Verkefnið fellur því vel að hlutverki stofnunarinnar.4. Ljúka endurskoðun á skilgreiningu á tengdum aðilum fyrir áramót Í skýrslu Ríkisendurskoðunar um eftirlit Fiskistofu frá því í janúar sl. kemur fram að ekki verði séð að Fiskistofa kanni hvort yfirráð tengdra aðila í sjávarútvegi yfir aflahlutdeildum sé í samræmi við það hámark sem er skilgreint í lögum um stjórn fiskveiða. Ráðast þurfi í endurskoðun á 13. og 14. gr. laganna svo reglur um hámarksaflahlutdeild séu skýrar. Í mars 2019 skipaði sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra verkefnisstjórn undir forystu Sigurðar Þórðarsonar fyrrverandi ríkisendurskoðanda til að koma með tillögur um bætt eftirlit með fiskveiðiauðlindinni. Nefndinni var m.a. falið að bregðast við fyrrgreindri ábendingu Ríkisendurskoðunar. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur nú óskað eftir því við nefndina að hún skili tillögum þar að lútandi fyrir 1. janúar nk. Þá er að vænta tillagna frá nefndinni á næstu vikum um bætt eftirlit með fiskveiðum og með vigtun sjávarafla.Bryndís Kristjánsdóttir skattrannsóknarstjóri er komin með loforð upp á aukinn mannafla tímabundið til að sinna verkefnum á borð við Samherjamálinu á sem skjótastan og farsælastan hátt.Fréttablaðið/Vilhelm5. Tryggja viðbótarfjárveitingar til skattrannsókna Komið hafa fram ýmis atriði sem þarfnast ítarlegrar skoðunar af hálfu Skattrannsóknarstjóra og Ríkisskattstjóra. Í ljósi umfangs og flækjustigs slíkra mála hefur ríkisstjórnin ákveðið að stofnununum verði gert kleift að auka mannafla tímabundið til að geta sinnt þessum verkefnum á sem skjótastan og farsælastan hátt.6. Varnir gegn hagsmunaárekstrum og mútubrotum Á ríkisstjórnarfundinum fór forsætisráðherra yfir þau umbótaverkefni sem hafa verið í vinnslu eða eru í mótun í forsætisráðuneytinu um aukið gagnsæi og traust, þ. á m. breytingar á upplýsingalögum, frumvarp til laga um vernd uppljóstrara og fyrirhugað frumvarp forsætisráðherra um varnir gegn hagsmunaárekstrum. Þá fór dómsmálaráðherra yfir löggjöf, alþjóðasamninga og þau atriði sem unnið hefur verið að og varða mútubrot og peningaþvætti. Þá verður hugað sérstaklega að fjármögnun rannsóknar héraðssaksóknara í tengslum við rannsókn embættisins á Samherjamálinu.7. Viðbrögð erlendis Á fundi ríkisstjórnarinnar var fjallað um Samherjamálið með tilliti til alþjóðasamskipta. Hvorki utanríkisráðuneytið, sendiskrifstofur né viðskiptafulltrúar ekki fengið teljandi fyrirspurnir eða athugasemdir frá stjórnvöldum annarra ríkja eða alþjóðlegum og svæðisbundnum samtökum. Utanríkisráðuneytið fylgist með umfjöllun erlendis og hefur undirbúið viðbrögð vegna hugsanlegs orðsporshnekkis en hefur ekki talið ástæðu til að taka frumkvæði í sérstakri kynningu á málinu.
Alþingi Samherjaskjölin Sjávarútvegur Mest lesið Lokuðu þorpi í leit að svörum um hvarf tveggja ára drengs Erlent Stærsti gígurinn orðinn „formfagur“ Innlent Lýsisskip strandaði í Fáskrúðsfirði Innlent Voru sérstaklega varaðir við árás frá ISKP Erlent Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn Innlent Vilja einfalda fólki að komast til sjúkraþjálfara Innlent „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Innlent Átta ára stúlka sú eina sem lifði rútuslys af Erlent „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Innlent Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Innlent Fleiri fréttir Lýsisskip strandaði í Fáskrúðsfirði Stærsti gígurinn orðinn „formfagur“ Vilja einfalda fólki að komast til sjúkraþjálfara Vélsleðamaður lenti í snjóflóði Kvöldfréttir Stöðvar 2 Hætt við framboð og vonast eftir þjóðhollum og guðræknum forseta Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Aðstoða göngumann á Móskarðshnjúkum Íbúar Hlíða velta fyrir sér dularfullum hvelli Ísland sé í torfkofanum í meðferð alvarlegra atvika Ný og glæsileg skólaþyrping byggð á Hellu Hamfaragámur Bónus tryggir kældan mat í neyðarástandi Fullkomlega sáttur við ákvörðun sína en útilokar ekkert „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Hádegisfréttir Bylgjunnar Svipar til gamalla óupplýstra rána Sýknaður af ákæru um að hafa tekið í háls barns Bjartur skírdagur fram undan í höfuðborginni Líkamsárás til rannsóknar eftir nóttina Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Vilja koma böndum á bókhald trúfélaga Ferðaóðir Íslendingar þyrpast í ferðalög innanlands sem utan Verulega brugðið yfir Hamraborgarmálinu Hátt í hundrað dauðsföll á þremur árum Týndi vinningshafinn gaf sig fram og græddi níu milljónir Felldu úr gildi friðlýsingu en mátu Mumma ekki vanhæfan Kvöldfréttir Stöðvar 2 Býr á Íslandi en dæmd í sex ára fangelsi í Rússlandi Eldur í Hafnarfirði Sjá meira